Goðasteinn - 01.09.1970, Side 29

Goðasteinn - 01.09.1970, Side 29
%inar Sigurfinnsson: Guðmundur í Kotey „Goðasteinn“ hefur margra genginna granna minnzt og þannig forðað frá gleymsku nöfnum og ferli manna, sem vert er að muna og ýmislegt má læra af. Þctta er vel gert og þakkarvert eins og flcira á blöðum þessa þjóðlega rits. Nú langar mig að minnast með fáum orðum á afa minn, en minning hans er mér kærri en flestra annarra, og honum hefði ég öðrum fremur viljað líkjast. Guðmundur hét hann, Einarsson, fæddur að Borgarhöfn í Suðursveit 25. maí 1831. Faðir hans var Einar Guðmundsson húsmaður í Gerði, talinn fæddur að Ás- garði í Landbroti en er að Hofi í Öræfum, smali, 19 ára 1817. Móðir hans var Margrét Erlendsdóttir, fædd að Sævarhólum í Suðursveit 1805. Hún kom svo að Fjósakoti í Mcðallandi 1833 með Gu.ðmund son sinn tveggja ára. Margrét giftist Halldóri Sveins- syni bónda að Fjósakoti, og þar ólst Guðmundur upp við næsta þröngan kost. Urn tvítugt fór hann vinnumaður að Eystri-Lyngum til Einars Einarssonar bónda þar og dvaldi þar nokkur ár. Meðal annars heimafólks á Lyngum var heimasæta, sem hét Kristín. Hún var jafnaldra Guðmundar, og felldu þau hugi saman. Þau giftust 1857 og hófu búskap sem húsmenn að Fjósakoti. Síðar fluttu þau að Háu-Kotey og bjuggu þar við fremur þröng- an efnahag cn farsæla og ánægjuríka sambúð til ellidaga. Börn eignuðust þau nokkur. Synir þeirra, þrír, bjuggu í Reykjavík: Guðmundur bóndi á Vegamótum og kenndur við þann stað, Ein- ar steinhöggvari á Grettisgötu 28 og Jóhann í Sundi, er dó á bezta Godasteinn 27

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.