Goðasteinn - 01.09.1970, Side 33

Goðasteinn - 01.09.1970, Side 33
komnir þetta nærri. Ég komst yfir álinn á brotinu, þó alldjúpt væri, hljóp svo niður grynningar og út á brot, sem var neðan við forina, þar sem selirnir voru. Nótin barst mjög hægt niður eftir, því straumur var hægur á milli brotanna. Jóhannes hélt í nótarendann í bátnum og hafði gát á öllu, en drengirnir andæfðu. Busl og skvetti var að sjá við nótina, eitthvað var að festast í henni. Bátnum var stefnt svo, að nótin fór í bug, og brátt barst hún að grynningum. Ég náði í lausa endann, og brátt var öll nótin komin á grunnt vatn, og margir selir sprikluðu fastir í henni. Þeir fengu snör og þung högg á nasirnar, síðan hálsskornir, greiddir úr og dregnir á þurrt. Strax var nótin greidd upp í bátinn. Ég hljóp út á neðra brotið og tók þar stöðu. Hinir reru upp fyrir forarbotninn, lögðu þar út nótina, scm barst niður eftir líkt og áður. Eitthvað fékkst í þessum seinni drætti, svo nú lágu 12 selir dauðir, sumir vænir, á eyrinni. Þessi mikli afli var látinn upp í bátinn, ásamt nótinni, og svo varð að draga hann með öllu saman upp eftir Fljótinu. Hann var þungur í drætti á móti straumnum og erfitt að vaða, því velja varð nægilega djúpt vatn fyrir bátinn, sandbotninn víða laus og þungur. Allt komst þó að lokum upp á Bæjarhólmataglið. Þar var allt skilið eftir og gengið heim. Komið var langt fram á kvöld og mál að hvílast. Þegar að morgni var farið með hesta að sækja veiðina, sem þótti góð og mikil miðað við liðsafla, ein mesta happaferð „í ós“ og munu fleiri en heimilið á Söndum hafa notið góðs af. Goðasteinn 31

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.