Goðasteinn - 01.09.1970, Side 43
hér á landi. Guðmundur Hjaltason kennari (d. 1918), alþýðufræð-
arinn alkunni, var nýkominn frá dvöl í Noregi og skrifaði um
nýju æskulýðsfélögin norsku í blaðið Austra, er kom út á Seyðis-
firði. Hann var hrifinn af brennandi áhuga æskulýðsins í Noregi,
sem eftir skilnað Svía og Norðmanna samcinaðist í öflugri þjóð-
ernislegri hreyfingu.
Blað af Austra með grein um þetta efni frá hendi Guðmundar
barst í hendur feðga undir Eyjafjöllum, Sigurðar bónda á Selja-
landi Sigurðssonar og sona hans, Hannesar og Hálfdánar. Þeir
feðgar sýndu greinina ýmsum sveitungum sínum, og af þessari rót
spratt ungmcnnafélagið Drífandi, sem stofnað var 14. jan. 1906.*
Umf. Akureyrar, sem talið er fyrsta umf. á landinu, var stofn-
að fyrr í sama mánuði, 7. janúar. Ekki gat verið um áhrif frá
stofnun Akureyrarfélagsins að ræða eins og samgöngum var þá
háttað, heldur mun undirrótin hafa verið hin sama bæði á Akur-
eyri og undir Eyjafjöllum: eldkveikja frá penna Guðm. Hjalta-
sonar.
Fyrsta stjórn Umf. Drífandi var þannig skipuð: Form. Sig. Vig-
fússon, Brúnum; ritari Bergsteinn Bergsteinsson, Seljalandsseli og
gjaldkeri Kort Elísson, Fit. Sigurður var lengstum endurkosinn
formaður félagsins meðan það starfaði.
Félagið fékk til afnota samkomuhús, sem þeir Seljalandsbræður
Hannes og Hálfdán komu upp með eindæma dugnaði. Það var
áfast við rjómabússkála sveitarinnar við Hofsá hjá Seljalandi.
Þar voru haldnir fundir félagsins fyrstu árin og almennar skemmti-
samkomur með ræðuhöldum, upplestri, söng og dansi, og stund-
um glímu. Síðan fékk félagið leigða stofu í Hamragörðum til
fundahalda, eftir að það varð að sleppa samkomuhúsinu við
Hofsá.
Eftir stofnun Umf. fslands 1907, var Sigurður oftast fulltrúi
félags síns á fjórðungsþingum Sunnlendingafjórðungs og svo sam-
bandsþingum, sem fjórðungsþingin kusu fulltrúa til.
* Sú villa hefur slæðzt inn í minningarritið „Skarphéðin 1910-’50“ bls. 20,
að Umf. Drífandi hafi verið í Ásólfsskálasókn'. Það er alrangt því félagssvæðið
var aðallega Stóra-Dalssókn og fundarstaðir þess alla tíð innan sóknarinnar.
Godasteimi
41