Goðasteinn - 01.09.1970, Side 51

Goðasteinn - 01.09.1970, Side 51
sem þú fyrr eða síðar munt komast að raun um, að verður þér ofurefli." Ungmennið svaraði: „Þið þykist ráða mér heilt, en þið vitið ekki, hvað þið segið, og mun ég halda ferð minni áfram í þeirri von, að drottinn guð minn muni leiða mig yfir allar hinar mörgu og miklu hættur, sem fyrir mér iiggja.“ Skildi hann þá við menn- ina og hélt vonglaður áfram, þrátt fyrir alla örðugleika, og segir nú ei neitt af ferðum hans, fyrr en hann kemur í þorp eitt, sem leiðin lá um. Bar þar margt fyrir augu hans, er reyndi að fæla hann út af hinni réttu braut. Hann sá inn í dýrlega samkomu- sali, þar sem fjöidi ungra manna sátu og stóðu við allskonar dillandi skemmtanir. Þegar hinir ungu menn sáu hann, sögðu jíeir sem einum munni: „Kom til vor. Njót með oss hinna glað- væru skcmmtana vorra. Þú lítur út fyrir að vera lúinn og veitir því ekki af að kasta af þér áhyggjum þínum litla stund og skemmta þér með oss. Hér er allt að hafa, sem mannlegur lík- ami girnist og sem endurnærir þreyttar sálir og líkama manna. Kom til vor og drekk með oss skál skemmtana vorra í ljúfu og hreinu víni, sem mun endurnæra líkama þinn og gjöra þig glað- an.“ Og hann sá gömlu frúna hafða upp af ótal höndum, mjög sakleysislega á svipinn. En hann afþakkaði hið glæsilega boð, því hann minntist heil- ræða gamla mannsins, og hélt áfram hina grýttu braut, án þess að hirða um töfrasýnir og tælandi raddir. Með stakri þolinmæði og þrautseigju kleif hann stöðugt hærra og hærra og létti ei ferð sinni, fyrr en hann hafði sigrað hæsta tind fjallsins. Og þegar hann sá og fann, að hann var búinn að ná fullum sigri, leit hann til baka yfir braut sína og fann þá til þeirrar gleði í hjarta sínu, sem sá einn getur fundið, sem barizt hefir fyrir góðu málefni og fengið sigur. En í gleði sinn gleymdi hann ekki drottni, heldur féll á kné og þakkaði honum af hrærðu hjarta fyrir handleiðslu hans á hættum vegi. Goðasteinn 49

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.