Goðasteinn - 01.09.1970, Side 56

Goðasteinn - 01.09.1970, Side 56
Gjarnan kýs ég nú að njóta nafns og pínu Græðarans, honurn krjúpa fús til fóta fyrir bón og árnan hans. Unda runninn helgur hver hylji mínar illgjörðer. Fyrir reiði þungri þinni þyrm þú, Drottinn, sálu minni. Gæzkuríkan þig ég þekki, þín ég barnkind nefnast má, því útskúfa þú mér ekki þinni náð og gæzku frá. Minnstu, að ég er þrællinn þinn, þú ert Guð og Drottinn minn, gleyma mér því máttu eigi, minn Herra, á þessum degi. Gef mér hræring heilags anda í hjarta mitt og brjóstið inn, svo ég kunni vcl að vanda verk mín öll og lifnaðinn. Engla þinna umsjón fríð annist mig á hverri tíð, fótspor mín til gæfu greiði, götu friðar áfram leiði. Sérhvern kristinn, mig og mína, menn og kvinnur, börn og hjú, fel ég allt í umsjón þína, að því gæti náð þín trú. Orð mín verk og athafner allt margblessist nú í þér, kvikfénaðinn, góss og gæði, gegnum allt þín blessun þræði. 54 Goðastehm

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.