Goðasteinn - 01.09.1970, Side 62
verið þessi ár. Því var haldið í kringlóttum hnapp, þannig að
fjallmenn reistu tjöld sín í stórum hring. Var jafnt bil milli tjald-
anna, svo hringurinn náði vel utan um safnið. Bilið milli tjald-
anna kallaðist skárðið, og skyldi hvert tjaldfélag hafa eitt skarð
til umsjónar alla nóttina svo öruggt væri, að ekki slyppi þar fé
út. I hverju tjaldi voru venjulega þrír fjallmenn. Þeir urðu því
að standa í skarðinu sinn þriðja hluta næturinnar hver eða hafa
mann fyrir sig.
Lítið næði var hjá fénu, það rann í hring meðfram tjaldaröð-
inni. Þó bannað væri að ganga innan um safnið, þá var svo mikil
ókyrrð hjá tjöldunum, að féð, sem kom úr frjálsræði og kyrrð
fjallanna, var á sífelldri hringrás.
Nóttin á Murneyri
Þegar á Murneyri kom, var fyrst að flytja og hefta hestana og
svo að fá að koma inn í tjaldið til fjallmannanna og fá sér hress-
ingu, kjöt og kökur úr fjallskrínunni, sem nú hafði fengið sér-
stakt bragð við að ferðast í skjóðu og skrínu í marga daga. Á
eftir var brennheitt, svart ketilkaffi og lummur, sem komu að
heiman. Þetta var á þeim tíma óvenjulegt sælgæti; auk þess, hvað
skemmtilegt var að koma inn í tjaldið og sjá aðbúnað fjallmann-
anna, skrínur þeirra og flet, sem vitanlega var sára-fátæklegt en
þó nýstárlegt fyrir ungling, sem aldrei hafði í tjald komið og því
fremur, sem þetta allt hafði fengið á sig töfrablæ við að ferðast
inn um allan afrétt, yfir fjöll og firnindi. Við bættist, að fjall-
menn höfðu það til að segja sögur af ferðum sínum til að svala
forvitni okkar unglinga, sem höfðum heyrt og lesið sögur um úti-
legumenn og fjallabúa.
Hugur okkar var gljúpur og móttækilegur fyrir hverskyns frétt-
um eða ævintýrum úr fjallferðinni. Þarna gátu verið glænýjar
fréttir af viðburðaríku ferðalagi inn um fjöll og óbyggðir. Við
litum því allmikið upp til fjallmannanna, er þcir komu úr þess-
ari merkilegu ferð og það því fremur, sem ekki voru taldir hæfir
menn til fjallreiðar aðrir en röskir menn á góðum aldri, vel út-
búnir að öllu cn fyrst og fremst: vel ríðandi. Fjallhesturinn skyldi
60
Goðasteinn