Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 63

Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 63
vera traustur og röskur. Það mátti ekki vera letingi og ekki hent- ugt, að hann væri fjörgapi, því hann þreytti sig og gat valdið slysi á grjótapal og vegleysum. Þá var hundurinn sjálfsagður félagi í ferðinni. Góð lnisfrcyja ætlaði honum sérstakt nesti, og nærgætinn maður hafði gæru- skinn fyrir hundinn að liggja á, gjarnan við fætur sér í tjaldinu, ef veður var slæmt. Við unglingar, og enda allir fullorðnir líka, höfðum áhuga fyrir að vita, hvernig fjallferðin hefði gengið. Hvernig gekk ykkur yfirleitt? Hvernig var veðrið? Hvernig smalaðist? Er féð fallegt? Hefurðu séð kindur frá okkur? Villtist enginn, eða komuzt þið í eltingarleik? Sáuð þið tófur? Sáuð þið ekki fjallabúa eða eitt- hvað merkilegt? Þannig var spurt, en fjallmenn svöruðu, og höfðu þá margir tilhneigingu til að láta drjúglega yfir ferðinni; höfðu fengið illviðri, svo tjaldið ætlaði upp, lent í blindþoku og séð þá feiknarlega stóran mann, risa, en hann hvarf út í þokuna, þegar saman dró o. fl. þess háttar. Þannig höfðu þeir, sem grínfullir voru eða lagnir að segja frá, gaman af að æsa ímyndun okkar, sem að heiman komum. En þctta allt til samans gjörði tjaldið og þessa stund svo hrífandi og merkilega, að hún gleymdist aldrei; ailtaf þakin töfrablæ ánægjustunda æskuáranna. Þar sem þetta var um það leyti, er byrjaði að skyggja, var oft, að fólkið úti gekk of nærri tjöldunum og datt um stögin eða slangraði yfir þau. Urðu fjallmenn þá oft allæfir, báðu menn ganga annarsstaðar en á tjöldunum. En svo var kveikt á kertum í tjöld- unum, og þá fékk allt nýjan blæ. Var þá líka gaman að koma út, þegar kominn var ljósahringur allt í kringum safnið, því í öllum tjöldum loguðu ljós. Þá er nú komið allmargt fólk, einkum ef veðrið er gott. Fólkið er í góðu skapi. Bráðlega fara einhvcrjir að syngja. Margir karl- anna eru góðglaðir, sem kallað cr, og hvernig er hægt að njóta þess betur en með því að taka lagið: ,,Hvað er svo glatt“ . . . „Frjálst er í fjallasal" . . . „Þið þekkið fold“ . . . ,,Þú stjarnan mín“ o.m.fl. Aldrei hef ég orðið hrifnari af söng cn þarna, enda voru þarna beztu söngmenn úr mörgum sveitum. Það er byrjað að skyggja. Loftið er tært og hljóðbært. Söng- Goðasteinn 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.