Goðasteinn - 01.09.1970, Side 71
Gunnar Magnússon frá
Reynisdal:
Úr Mýrdal
til miðnætursólar
Mýrdalurinn er þannig staðsettur, að þar sér vel til skipaferða
og breytileika hafsins við ströndina. Þaðan er stundaður árabáta-
útvegur, þá er ég var að alast upp, og það var mér nýr heimur
að fá að fara í sandinn og sjá það, scm þar fór fram á sviði sjó-
sóknar. En úti á miðunum ösluðu togarar, og skútur svifu þönd-
um seglum vestur og austur vetur hvern.
Ég fékk fyrst að róa veturinn sem ég varð 12 ára, og dró þá
úr sjó 27 stórþorska. Mér þótti það skemmtileg nýlunda að glíma
við þorskinn.
En hugurinn stefndi að því að komast á togara, eins og margir
fleiri Mýrdælingar. Svo var það afráðið, að ég legði út í ævin-
týrið, er ég var átján ára. Ég hafði aldrei komið til Reykjavíkur
og þekkti þar engan, en það dró ekki kjark úr mér að heldur.
Það var allstór hópur manna, scm lagði af stað austan úr Mýr-
dal hinn 20. janúar 1930. Voru það allt vcrmenn að fara til sjávar.
Ferðazt var á hestum, því ekki voru samgöngurnar komnar í það
horf, er síðar varð. Ég var einn í hópi þessara manna. Farar-
stjóri var Jón Árnason bóndi í Norður-Hvammi. í förinni voru
Godasteinn
69