Goðasteinn - 01.09.1970, Side 74
fór cg og hitti Karl sama kvöldið og hann kom í höfn. Las hann
bréfið og leit síðan á mig hátt og lágt. Síðan sagði hann, að
hann skyldi ætla mér pláss og kvaðst mundi hafa samband við
mig, þegar að lögskráningu kæmi. Leið svo fram að þeim tíma,
er togarar færu að fara á saltfiskveiðar, um io. febrúar. Hringdi
Karl þá í mig og sagði mér stað og stund, er cg ætti að mæta til
skráningar. Gengum við síðan allir félagar mínir, sem áttum að
verða á skipinu, á fund Baldurs Steingrímssonar iögskráningar-
stjóra, og fór skráning fram fljótt og vel. Var ég nú orðinn lög-
skráður togaraháseti.
Togarinn Ólafur var 339 smálestir, brúttó, byggður í Hollandi.
Var hann misheppnað skip að sumu leyti. Upphaflega átti hann
að vera bátadekkslaus en var breytt í það að hafa bátadekk.
Voru þá steyptar margar smálestir að þyngd í botninn til þess
að halda jafnvægi. Var hann alltaf mjög afturhlaðinn og háska-
legur á lensi. Vélarafl var 600 hestöfl.
Skipstjóri var, cins og fyrr segir, Karl Guðmundsson, stýrimað-
ur Sigurjón Mýrdal, vélstjóri Jón Hjálmarsson og bátsmaður Pét-
ur Þórðarson. Voru þetta allt samanvaldir kappar í fangbrögðum
við Ægi. Hásetar voru flestir ungir menn og víða að. Eigandi
var útgerðarfélagið Alliance h.f.
Fyrstu túrana fórum við vestur í Jökuldjúp. Þar var margt
skipa og af mörgu þjóðerni. Við fiskuðum þar allvel. Bar ekkert
til tíðinda. Mér féll sjómennskan fremur vel, var ekki neitt sjó-
veikur. Að vísu var þetta erfitt starf fyrir mig óvanan. Þá var
staðið í 16 stundir en hvílzt í 8. Síðari hluta marz var svo haldið
á Selvogsbanka. Þar var ógrynni af skipum og fiskur mikill, sér-
staklega þegar farið var að toga við Hraunið. Þar var óskap-
legur mokstur, stundum togað í 10 mínútur, og var þá trollið
fullt. Karl þótti með þeim skarpari þarna við Hraunið, sumir
rifu svo mikið.
Þarna var verið til og frá um Bankann, þar til í miðjum maí.
Eftir Bankavertíðina gerðum við einn túr austur á Hvalbak. Þar
var mikill fiskur en mjög smár. Var það ljótt að sjá, hvernig far-
ið var með uppvaxandi fiskistofn, miklu var mokað í sjóinn aftur.
Aflann úr þessum túr lögðum við upp á Seyðisfirði. Þar tókum
72
Goðasteinn