Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 75
við kol, salt og vistir, og var nú ætlunin að gera cinn langan túr
fyrir öllu Norðurlandi, sem og varð. Var fyrst haldið norður á
Grímscyjarsund. Var þar reytingsafli. Síðan var haldið á Skaga-
grunn. Þar var góður afli fyrst en dvínaði þá, er skipum fjölgaði.
Þar næst var haldið á Hornbankann og togað þar 20-30 mílur
norður af Horni. Var þar frekar tregur afli.
Veður var gott allan tímann, sem við vorum fyrir Norður-
landi. Sérstaklega var fagurt veður, meðan við vorum á Horn-
banka, logn og sólskin á hverjum sólarhring. Þar var það sem
ég sá miðnætursólina, og var það dásemd, sem ekki gleymist.
Ég hafði ekki hugsað mér, að slík kyrrð og fegurð ríkti þarna úti
á hafinu. Að lokum var haldið vestur á Hala til þess að klára
túrinn. Vorum við þar í tvo eða þrjá daga að toga. Var nú skip-
ið fullt, enda kolin á þrotum. Svo var haldið suður og gekk allt
að óskum. Þegar við komum suður undir Snæfellsnes, var hring-
ferðinni lokað fyrir mér kringum Island á þessari fyrstu vertíð
minni um borð í togara.
Þegar við vorum komnir inn í bugt, þá kastaði Karl og tók
eitt hol, en þar var lítið að fá, aðeins nokkrar körfur af stútungi,
scm skipstjóri gaf körlunum í soðið. Héldum við svo til hafnar
í Reykjavík. Vertíðinni var lokið, enda komið fram undir miðjan
júní.
Þegar upp var gert, sýndi reikningur minn 1600 króna gróða
fyrir úthaldið. Þá var krónan verðmeiri en nú! Ég var búinn að
ljúka einni vertíð á togara, og nú vildi ég sem fyrst komast hcim.
Tók ég mér far austur með bifreið frá Bifreiðastöð Rcykjavíkur.
Þá var ekki bílfært lengra austur en í Fljótshlíðina. Nú var mik-
ill munur á því að ferðast frá því sem verið hafði um veturinn.
Sumar var í lofti, snjór og ísar á bak og burt. Helgi á Hlíðar-
enda reiddi okkur farþegana austur yfir vötn, að Seljalandi und-
ir Eyjafjöllum. Þar tók Brandur Stefánsson við. Komst ég heim
um kvöldið í fögru júníveðri.
Nú er öðruvísi umhorfs í samgöngumálum og atvinnuháttum.
Nú fer enginn unglingur ríðandi á hesti austan úr Mýrdal um
hávetur í þeim ævintýrahug að komast í atvinnu sem togarasjó-
maður í Reykjavík.
Godaste'vm
7