Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 77
nú allt vel til lykta leitt og minn góði sonur búinn að fá greftr-
un, sem ég þráði mikið eftir, þá á ég bágt með að vera ekki að
hugsa um þetta, og slær mig þá stundum nokkuð sár hryggð. En
hvað ég hef borizt vel af, er það Guð, sem er í veikum máttugur,
og hann hefur gefið mér að geta borið harm minn í hljóði, styrkt
mig í stríði og gefið farsælan enda.
Ég er þér mjög þakklát fyrir þá framkvæmdarsömu umhyggju
að leita styrks fyrir mig, (sýslumaðurinn skrifaði meðmæli, sagði
Loftur mér), og þinni góðu konu, mér óþekktri, að senda mér
svo gott kvæði. Það var búið að yrkja eftirmæli eftir Eggert sál-
uga, en það var áður en líkið fannst og á því ekki eins vel við.
Ég veit, að búið muni vera að skrifa, að hestarnir fundust og
voru hirtir. Koffortin fundust nokkru síðar, og er hér geymt það,
sem í þeim var, búið að þurrka það eins og varð.
Eftir ástæðum líður mér bærilega. Ég hef hugsað til að vera
við (þ.e. við búskap) þetta ár. Skuldir eftir Eggert sáluga borg-
ast víst af hans eftirlátnum munum. Búið er að selja verkfærin
fyrir 200 krónur Markúsi í Hjörleifshöfða, handa syni hans, Skær-
ingi; á að læra myndasmíði. Skuldir, sem ég veit, voru um 400
kr. Ekki finnst skrifað, hvað hann átti útistandandi hjá fólki
fyrir myndir. Þetta enda ég með minni beztu kveðju til ykkar
hjóna og bið þig að skila kveðju til Öræfinga, sem mcð þér voru.
Með vinsemd og virðingu,
Guðrún Magnúsdóttir
Godasteinn
75