Goðasteinn - 01.09.1970, Page 80

Goðasteinn - 01.09.1970, Page 80
an hnekk við slíkt. Uppflosnað þjóðlíf og alþjóðahyggja sigla því aðeins í kjölfarið, að varnir séu veikar fyrir. Nú er það svo, að ekkert gott né markvert vinnst, nema nokkuð sé fyrir því haft. Á það ekki hvað sízt við um menningu og félagslegan þroska. íslenzka þjóðfélagið er ungt að árum sem sjálfstætt og vaxandi samfélag. Við höfum haft í mörg horn að líta við að byggja upp og treysta þetta samfélag okkar. Og á tímum örra breytinga, hraðfara þróunar og afnáms aldagamallar einangrunar er sízt að undra, þótt sitthvað gangi úr skorðum. Einnig er það svo, að í moldviðri augnabliksins og hita baráttunnar getur okkur stund- um sézt yfir ýmis nærtæk verkefni. En samt erum við vafalaust öll sammála um það að vilja efla athafnalíf og menningu í land- inu. Okkur getur greint á um leiðir og gerir það ekki ósjaldan, en það ætti ekki að koma að sök, ef markmiðið er gott og eitt og hið sama. Fullvíst er það, að margt hefur okkur vel tekizt, þótt sitthvað hefði getað farið betur og ýmislegt hafi farið í súginn. Uppeldis og menntamál eru sífellt erfið viðfangs og stöðugum breytingum háð. Stundum getur svo virzt, að foreldrar hafi næsta lítinn tíma til að sinna þessum verkefnum og skólar sýnast jafnvel eiga i erfiðleikum með að bregðast rétt og viðeigandi við vandamálum síbreytilegra tíma. Æskan er þróttmikil og vill láta að sér kveða. Oft á tíðum finnur hún orku sinni ekki heppilegan farveg, því að breyttir þjóðfélagshættir valda verkefnaskorti hjá ungu fólki. Það ætti því að vera fyrsta boðorð að bæta þar úr og finna æsku landsins heppileg verkefni til að stæla hug og hönd. Allir þurfa að fá tækifæri til að starfa og hugsjón til að vinna fyrir. Skólar og félagssamtök taka í æ ríkara mæli við uppeldi og mótun ung- menna af heimilunum. Skólum er mikill vandi á höndum um val tómstundastarfa. Margt kemur til greina og sitt sýnist hverjum. En það sem hvað brýnast virðist þessi árin og um alla framtíð, er að efla í fari æsku landsins þjóðlegt lífsviðhorf og vilja til að láta gott af sér leiða í þágu landsins og samfélagsins. íslendingar eru fáir, landið er stórt og verkefnin mörg. Það ríður því á miklu að sérhver leggi sig fram um að vinna vel, svo að við get- um sífellt glaðzt yfir vexti og grósku samfélags okkar. í því efni 78 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.