Goðasteinn - 01.09.1970, Qupperneq 84
og eins, hversu með skyldi fara, ef allir voru af bæ gengnir, er
boð var á ferð. Um boðtíma segir þar að niðurlagi: „Engi skal
boð bera á hönd öðrum, síðan sólu er sett um sumar en degi um
vetuL\“
Vel var búið um þingboð til flutnings. Það var læst við blað
þingboðsaxar með innsigli sýslunnar. Þá var því vafið um axar-
skaftið. Þar utan yfir var vafið eltiskinni og að lokum bundið að
með þveng eða spotta.
Til skamms tíma mundu allir sveitamenn, hvernig rétt boðleið
var í byggð þeirra, en nú er það öllum óskyldur fróðleikur, það
er þá helzt, að maður sjái gömlu boðleiðina í embættisbókum
prestanna, sem oft héldu sig við hana í húsvitjunum.
Enginn hefur kunnað að segja mér frá boðburði til jafns við
Kolbein Guðmundsson. Hann sagði mér, að sú hefði verið trú
í Árnessýslu, að ekki mætti bera þingboð til baðstofu. Átti bóndi
að verða fyrir hundraðsmissi í búi sínu (kýrgildi), ef sú slysni
henti. Boðberi afhenti þingboðið við bæjardyr, þar sem það var
lesið, og síðan var það borið eða flutt til næsta bæjar og svo
koll af kolli. Kolbeinn sagði, að þingboðið hefði verið lagt á
syllu eða drótt í bæjardyrum, cf einhver bið varð á með e\ð
flytja það áfram til næsta bæjar. Minnir það á elztu norsk lög,
sem gera ráð fyrir, að skornar séu þrjár skorur í dyrastaf og
þingboðið sett yfir dyr, ef enginn er heima til að taka á móti
því.
Koibeinn sagði sögu af stúlku í Laugardal, sem bar þingboðið
til næsta bæjar í barmi sínum. Hún átti annað skylt erindi og
mundi það betur, er á bæinn kom. Anaði hún með þingboðið til
baðstofu, lauk aukaerindinu en gleymdi þingboðinu. Hvarf hún
svo brottu og mundi þá fyrst til þingboðsins, er hún var búin að
kveðja og komin út á stétt. Hún sneri við, lagði þingboðið af sér
í bæjardyrum, gekk svo til baðstofu og sagðist hafa gleymt að
segja frá því áðan, að hún hefði skilið þingboðið eftir frammi í
bæjardyrum. Bóndanum hugnaðist gætni hennar svo vel, að hann
gaf henni spesíu.
Þingboðsöxin frá Austvaðsholti cr fagmannlega unnin, smíða-
efnið áþekkt beyki, en kynni þó að vcra annað. Annarsvegar á
82
Goðasteinn