Goðasteinn - 01.09.1970, Qupperneq 87
Rctt þykir að Skyggnir flytji nú, þegar garðurinn er þegar orðinn
ársgamall, sögu málsins frá upphafi, til þess að hún geymist í
eigu Umf. Drífanda til athugunar síðar meir, þegar reynslan er
búin að sýna, að hve miklu leyti þetta fyrirtæki fullnægir þeim
vonum, sem forgöngumenn þess hafa gert sér um þau not, sem
af því mundu verða.
Eins og öllum er kunnugt, sem þekkja legu Markarfljóts, hef-
ur það frá upphafi legið þar sem það liggur nú, fram með Eyja-
fjöllum að vestanverðu, og smám saman eyðilagt víðáttumikið
sléttlendi milli Eyjafjalla og Fljótshlíðar; má sjá þess allmikil
merki bæði forn og ný. Hefur vatnsmagn þess ýmist brotizt vest-
ur á bóginn, niður um Landeyjar og út með Fljótshlíðinni, eða
austur um Eyjafjallasveitina og ávallt gert meira og minna tjón.
Fyrir nálega 100 árum voru víðáttumiklar engjar frá Stórumörk
þar scm nú eru svartir aurar, og fyrir rúmum 20 árum var þar
um 300-400 hesta slægjuland, sem nú er farið. Um miðja síðustu
öld var graslendi til norðausturs frá Dalsseli nálægt þriðjungi
meira en nú er, og þessu líkt mætti iengi telja.
Á fyrri öldum kom engum til hugar að neitt væri unnt að
gera til að afstýra þessum og þvílíkum skemmdum af völdum
náttúrunnar. Sá maður, sem hefði látið sér slíkt um munn fara,
hefði víst ekki verið talinn með fullu viti.
Það er fyrst kringum 1890 að menn fara að sjá fyrir alvöru,
að hér er voði á ferðum, og maðurinn sem kveður upp með
hvað gera skal, er Sæmundur heitinn Eyjólfsson, búfræðingur.
Hann var þá um nokkur ár í þjónustu Búnaðarfélags Suðuramts-
ins, en forseti félagsins þá um allmörg ár var Halldór Kr. Frið-
riksson, yfirkennari við Latínuskólann í Reykjavík, einhver mesti
framfaramaður landsins á sínum tíma. Sæmundur var manna
glöggskyggnastur á allt, sem laut að búnaðarháttum og sögu
landsins fyrr og síðar, og honum duldist ekki, hver voði var á
ferðum, bæði hér og víða annars staðar. Skrifaði hann í Bún-
aðarritið og víðar hverja greinina af annarri og sýndi með ómót-
mælanlegum rökum hvað gera þurfti. Hann hafði ferðazt hér um
alla sýsluna og séð hvað hér var að gerast, séð sandfokið eyði-
lcggja að ofanverðu - Landið og Rangárvellina - og vötnin að
Goðasteinn
85