Goðasteinn - 01.09.1970, Page 89

Goðasteinn - 01.09.1970, Page 89
ingur sendur hingað austur til athugunar. Sá hann, að rétt hafði verið frá skýrt og gerði áætlun um, hvað vegur frá Hvammsnúpi að Seljalandi mundi kosta, og nam sú áætlun 14.000,00 kr. Enn- fremur gerði hann lauslega áætlun um, að vegur inn yfir heiði að Neðradal mundi kosta 6000,00 til 8000,00 kr. Hér var þá fengið eitthvað til að styðjast við, þar sem þjóðvegurinn var í svo mikilli hættu, og nú var maður sendur með bréf frá hrepps- nefndinni til Búnaðarfélags íslands. Mætti hann á aðalfundi Bún- aðarfélagsins vorið 1903 og skýrði frá ástæðum; gat hann þess m.a. að áætlun Svb. Ól. mundi vera of há, og a.m.k. væri hægt að gera tilraun, sem óhætt væri að byggja á, fyrir miklu minna fé. Fundarmenn tóku vel í málið, sérstaklega Guðjón Guðmunds- son, ráðunautur, og var stjórn félagsins falið að íhuga málið og, ef til kæmi, gera nauðsynlegar ráðstafanir. Stjórnin svaraði þess- ari málaleitun með bréfi dags. 27. okt. sama ár og kvaðst ekki sjá félaginu fært að verða við henni. Nú lá málið niðri um tíma, nema hvað því var aftur og aftur hreyft, að sveitarmenn sjálfir þyrftu að hefjast handa og það því fremur, sem nú sýndist tæki- færi bjóðast. Vatnið var lagzt í Þverá, hafði gert það nálægt 1896, og var um tíma horfið frá Fjöllunum. Ýmsir málsmetandi menn út í frá hvöttu sveitarmenn til r»ð sýna nú rögg af sér meðan tími væri til. Má þær sárstaklega nefna Sigurð Sigurðsson, ráðunaut Bf. Isl., sem gerði allt, sem hann gat til að hrinda málinu áleiðis. En viðkvæðið var alltaf það sama: Sveitarmönn- um er ekki fært að leggja út í þetta stórvirki; jarðeigendur eiga að byrja. Hins vegar voru allir sammála um það, hver nauðsyn væri, að þessu verki yrði komið í framkvæmd. En á hvern hátt það væri unnt, það var sá þröskuldur, sem flestum sýndist ófær. Svona stóð málið í byrjun ársins 1909. Þá um veturinn kom allmikið vatn í Fljótið, og sýndi sig þá fljótt, hvert það stefndi, fyllti strax hina grunnu farvegi sína og rann svo viðstöðuiaust austur með fjalli. Bjuggust nú margir við, að vatnið væri búið að hafa vistaskipti. En svo var þó ekki, því þegar ísa leysti um vorið lagðist vatnið enn í Þverá. En nú höfðu menn þó enn einu sinni séð hvað verða mundi, begar vatnið kæmi alfarið. En ennþá var óleyst úr þeirri spurningu, hvernig ætti að byrja. Goðasteinn 87

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.