Goðasteinn - 01.09.1970, Side 90
Á fundi Umf. Drífanda 31. okt. 1909 var borin upp tillaga í
þá átt, að félagið reyndi að hrinda málinu eitthvað áleiðis. Urðu
allmiklar umræður um málið, og að síðustu var samþykkt að
taka ekki endanlega ákvörðun fyrr en á aðalfundi í janúar. Á
aðalfundi 19. jan 1910 var samþykkt í einu hljóði, að félagið
skyldi leggja fram 100 dagsverk, ef hreppsbændur legðu fram
600 dagsverk. Var Hannes Sigurðsson á Seljalandi kosinn til að
ferðast um hreppinn og safna loforðum bænda. Félagsstjórninni
var falið að jafna vinnunni niður á bændur, og gerði hún það
skömmu eftir fundinn.*) Fór svo Hannes um hreppinn og fékk
skrifleg loforð hjá bændum fyrir þeirri dagsverkatölu, sem stjórn
félagsins hafði jafnað niður, að einum tveimur undanskildum, og
var annar fjarverandi. Þegar Hannes hafði lokið ferð sinni, sendi
félagsstjórnin hreppsnefndinni skýrslu um hina lofuðu vinnu og
fól henni að hrinda málinu í framkvæmd. Hreppsnefndin tók svo
að sér málið, og skrifaði þegar Bf. fsl. og stjórnarráðinu og eig-
endum þeirra jarða, sem í hættu voru. Bf. fsl. og stjórnarráðið
tóku mjög greiðlega undir og sendu Jón Þorláksson vcrkfræðing
og Sigurð Sigurðsson ráðunaut til þess að athuga hvað gera
skyldi. Komu þeir hingað austur 10. apríl og dvöldu hér 4 daga
við mælingar. Komust þeir að þeirri niðurstöðu, að garður, sem
að þeirra áliti mundi nægja, mundi kosta nálægt 7.200,00 kr.
Litlu eftir að þeir komu til Reykjavíkur aftur, kom símskeyti
til hreppsnefndarinnar frá stjórnarráðinu, þess efnis, að lands-
stjórnin og Bf. fsl. vildu leggja fram til samans helming kostn-
aðarins og landsstjórnin taka að sér framkvæmd verksins, ef
hreppsbúar og jarðeigendur vildu taka að sér hinn helming kostn-
aðarins. Hreppsnefndin gekk að þessum kostum. Var svo byrjað
á verkinu 6. maí undir stjórn Árna Zakaríassonar, vegagerðar-
manns. Hafði hann verkstjórnina á hendi til 20. s. m. Þá var
hann ráðinn við vegagerð norður í Þingeyjarsýslu, en við verk-
*) Við mðurjöfrrun þess var mest farið eftir tölu vinnufærra manna hjá bænd-
um og nokkuð eftir þeirri hættu, sem jarðirnar voru í. Mest dagsverkatala var
25, minnst 5 á búanda.
88
Goðastemn