Goðasteinn - 01.09.1972, Blaðsíða 16
Árið 1959 var trésmiðja Kaupfélagsins efld og komið fyrir í
cndurbyggðu vörugeymsluhúsi. Þetta ár minntist Kaupfélagið 40
ára afmælis síns og í tilefni þess var heiðruð minning fyrsta for-
mannsins, séra Jakobs Ó. Lárussonar, með því að senda ekkju
hans, frú Sigríði Kjartansdóttur, skeyti og góða gjöf.
Svo sem fyrr var frá sagt, hafði Kaupfélagið tekið að sér að
reka sérleyfisferðir frá Reykjavík í Hvolsvöll og Landeyjar.
Nokkru síðar hafði það bætt við sérleyfisferðum í Fljótshlíð.
Hafði starfscmin farið vel af stað, en hnignað síðar. Árið 1960
var svo komið, að talsverður halli var á þessum rekstri, svo að
stjórnin ákvað að Kaupfélagið hætti þeirri starfsemi ög framseldi
sérleyfisrétt sinn til fólksflutninga. Var það gert nokkru síðar og
tók þá fyrirtækið Austurleið við áætlunarferðunum undir forystu
Óskars Sigurjónssonar.
Um þetta leyti ákvað félagsstjórnin samkvæmt óskum heima-
manna að stofna félagsdeild í Austur-Eyjafjallahreppi og nokkru
síðar í Rangárvallahreppi. Urðu deildir félagsins þar með ellefu
að tölu og heita þær Austur-Eyjafjalladeild, Vestur-Eyjafjalladeild,
Austur-Landeyjadeild, Vestur-Landeyjadeild, Hvolhreppsdeild,
Fljótshlíðardeild, Rangárvalladeild, Ásahreppsdeild, Holtadeild,
Landdeild og Djúpárhreppsdeild.
Árið 1961 var ákveðið að reisa nýtt frystihús á Hvolsvelli í
samvinnu við Sláturfélag Suðurlands og voru þá gerðar af þv/
teikningar. Hófust við það framkvæmdir árið eftir og voru eignar-
hlutföll þau í fyrirtækinu að Kaupfélagið átti einn þriðja móti
Sláturfélaginu. Sama ár var reist timburgeymsla á Hvolsvelli og
stækkuð vöruskemma á Rauðalæk.
Sumarið 1962 veiktist framkvæmdarstjóri félagsins, Magnús
Kristjánsson, og var lengi frá störfum. f forföllum hans skiptu meo
sér framkvæmdastjórninni þcir Guðni Jóhannsson, Grétar Björns
son, Matthías Pétursson og Guðjón Einarsson.
Árið 1963 ákvað stjórn Kaupfélagsins að greitt skyldi fyrir
því, að starfsfólk kæmi sér upp eigin húsnæði á Hvolsvelli. Voru
í því skyni reist tvö íbúðarhús og seld fokheld á sannvirði.
Nýr maður var kosinn í varastjórn árið 1964, Magnús Kjartans-
son i Hjallanesi, í stað Árna Jónssonar í Holtsmúla, er fluttist
14
Goðasteinn