Goðasteinn - 01.09.1972, Blaðsíða 87
frjáls og hafin var mikii framræsla og landþurrkun og kvaddi
konungur til hollenzka sérfræðinga til að stjórna þeim fram-
kvæmdum. Víða voru grafnir skipaskurðir, lagðir vegir og gerðar
brýr til að greiða fyrir samgöngum og örva atvinnulífið.
Þá var mikið gert til að efla iðnað í landinu og á þessum
árum hófst stórtæk framleiðsla á ýmsum skraut- og munaðar-
vörum, sem Frakkland var síðar frægt fyrir. Silkiræktin varð
mikilvæg atvinnugrein og fékk konungur ítalska silkiræktarmenn
til að kenna Frökkum þenna dýrmæta og vandmeðfarna iðnað.
Utanríkisverzlunin tók brátt að blómgast og óx ótrúlega á skömm-
um tíma. Skipastóllinn efldist og Frakkland varð á þessum árum
töluvert flotaveldi. Jafnframt vaxandi viðskiptum út á við, fengu
þeir Hinrik konungur og samstarfsmenn hans áhuga á að ná
yfirráðum í fjarlægum heimsálfum. Koligny hafði þegar á árum
borgarastríðsins reynt að stofna franska nýlendu í Suður-Ameríku,
en sú tilraun fór af mörgum ástæðum út um þúfur. En eftir að
friður komst á í landinu, tóku framtakssamir menn að sigla um
heimshöfin og kanna framandi lönd. Frægastur þessara leiðangurs-
manna var Champlain, sá er kannaði Kanada og stofnaði þar
borgina Quebec árið 1608, aðeins ári síðar cn Englendingar
stofnuðu nýlendu sína í Virginíu. Quebec varð brátt miðstöð
franskra yfirráða og landnáms víðsvcgar um Norður-Ameríku og
um langt skeið voru jafnvel meiri líkur á að þessi víðáttumikla
og auðuga heimsálfa yrði franskt fremur en enskt land, þótt á
annan veg færi.
Utanríkisstefna Hinriks konungs var eftir friðarsamningana við
Spán 1598 fremur varkár næstu árin. Alltaf veitti hann þó Niður-
lendingum verulegan stuðning í uppreisn þeirra gegn Spáni, en
þrátt fyrir það komst hann í töluvert vinfengi við páfann og
fékk lcyfi hans til að skilja við drottningu sína Margréti, þá er
hann gekk að eiga í blóðbrúðkaupinu alræmda 1572. Hjónaband
þeirra var barnlaust og auk þess þótti konungi meira en nóg um
ábyrgðarleysi hennar í ástamálum, þótt hann kallaði ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Hann skildi við Margréti 1599 og
gekk árið eftir að eiga ítalska aðalsdömu, Maríu af Medici.
Með þeim ráðahag stvrkti hann bæði fjárhag sinn og aðstöðu á
Goðasteinn
85