Goðasteinn - 01.09.1972, Blaðsíða 25
Rústir Miðtunguselja, séð til norðausturs. Sauðafell í baksýn.
Ljósm. E. H. Einarsson
brúnina. Þar eru greinilegar húsa- og kvíarústir, þótt þeim hati
verið mjög spillt við það, að þarna var síðar byggt sauðahús og
í það notað grjót úr gömlu rústunum.
Aðalgatan frá bæjunum upp á heiðarbrúnina er enn nefnd Sel-
gata, og Seltorfur heyrði ég nefndar torfur austan við hólinn,
en nú mun það nafn týnt.
Norðvestur af Heiðardal er dalkvos, er nefnist Selkrókur. Þar
um liggur markið milli Gatna og Heiðar. Vestanmegin í Krókn-
um, austan í Gatnahraunum, er Gatnasel byggt við móbergsbrík,
það er selið frá Götum, sem sr. Jón Sigurðsson getur um, að
notað sé annað veifið. Skammt sunnar er Selgil, þar hefur sel-
gatan legið yfir.
I Heiðarlandi nærri austur af Gatnaseli, eru húsarústir. Þar
er talið, að selið frá Stóru-Hciði hafi verið. Norðaustur af því
eru daladrög, sem nefnast Áverkadalir. Heyrt hef ég gamalt fólk
telja, að nafn sitt hafi þeir hlotið af því, að þá sól bar þar yfir,
Goðasteinn
23