Goðasteinn - 01.09.1972, Qupperneq 79
samkvæmt samkomulagi því fengu húgenottar nokkuö aukið trú-
arbragðafrelsi. Til þess að tryggja friðinn var og ákveðið, að þau
gengju að eigast Margrét systir konungsins og hinn ungi og glað-
væri Hinrik af Navarra.
Eftir að friður komst á innanlands, breyttist utanríkisstefnan
samkvæmt því. Dró þá mjög úr vinfenginu við Spán, en sam-
búðin við England batnaði. Áhrifa hins snjalla Koligny tók að
gæta í vaxandi mæli við hirðina, og konungurinn, sem bæði var
ungur og ósjálfstæður, lét um skeið mjög stjórnast af viðhorfum
hans og ráðleggingum. Ekkjudrottningin fylgdist af vaxandi
áhyggjum með þeirri þróun og þegar henni virtist sem tök henn-
ar á syninum væru að bresta, fylltist hún skelfingu. Bæði var að
hún óttaðist um eigin völd og auk þess mátti hún ekki til þess
hugsa að húgenottar færu að stjórna landinu.
En hún fékk lítið að gert um sinn og lagði því af þeim mun
meiri dugnaði á ráðin bak við tjöldin. Andrúmsloftið í París var
því þrungið spcnnu og óvissu, þegar hið konunglega brúðkaup
nálgaðist 1572. Hinn 18. ágúst voru þau gefin saman með pomp
og prakt Margrét prinsessa og Hinrik af Navarra án þess að
til alvarlegra tíðinda drægi. En tveimur dögum eftir brúðkaupið
réðst morðingi úr launsátri að hinum dáða húgenottaleiðtoga
Koligny og særði hann allmikið. Engi.nn efaðist um að hinn
brögðótti hertogi af Guise stæði að baki ódæðisverki þessu og
meðal húgenotta var það almcnnt álitið að ekkkjudrottningin
væri í vitorði með honum.
Konungurinn harmaði opinberlega morðárásina og heimsótti
Koligny á sjúkrabeð. Húgenottar kröfðust rannsóknar á málinu
og að hinum seku yrði refsað. Konungur, sem alltaf var veikur
fyrir og fljóthuga, gaf út tilskipun um að svo yrði gjört. Við það
fylltist móðir hans, ekkjudrottningin, örvæntingu, því að með
málsrannsókn sá hún fram á að valdagrundvöllur hennar kynni
að bresta og mundu þá húgenottar ná syni hennar algjörlega á sitt
band. Hún gat vel hugsað sér að hleypa af stað hörmungum nýrrar
borgarastyrjaldar fremur en að missa nokkuð af völdum sínum og
áhrifum yfir syninum og þar með ríkinu. Og mitt í þessum
skelfilegu hugrenningum tóku að þróast með ekkjudrottningunni
Goðasteinn
77