Úrval - 15.12.1980, Page 3
1
13. hefti
39. ár
Úrval
Jól
1980
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Úrval kemur út sem sérstakt jólahefti.
Vissulega hefur efni desemberheftis iðulega verið með nokkrum jólablæ, en
það hefur ekki hlotið heiti sem slíkt. Það gæti verið fróðlegt að sjá hvernig
lesendur kunna þessu uppátæki okkar og við viljum eindregið benda á, að
ekki er úr vegi að stinga niður penna og senda ritstjórninni tilskrif.
Þetta ár er nú mjög á enda og ekki verður annað sagt en að það sé að mörgu
leyti eftirminnilegt ár. Hver og einn gerir upp við sig hvað honum þykir eftir-
minnilegast, en úr þjóðlífinu almennt mætti þó ætla, að þrennt yrði lengst í
minnum haft: Tilurð nýrrar ríkisstjórnar með þeim úlfaþyt, sem í kringum
•'hana varð, forsetakosningarnar sem urðu til þess að Islendingar eignuðust
fallegasta forseta í heimi, umbrotin og sviptingarnar í kringum Flugleiðir. Ef
til vill verður bankamannaverkfallið líka í annála fært, þar sem þetta er í fyrsta
sinn sem þær virðulegu peningastofnanir loka svo alfarið á kúnnann.
Hvað nýtt ár færir okkur vitum við ekki til neinnar hlítar. Þó liggur sumt
fyrir, svo sem eins og peningabreytingin. Eins og kunnugt er verður krónan
hundraðfalt verðmeiri frá og með miðnætti á gamlárskvöld og eru það út af
fyrir sig mikil tíðindi og góð, því það er fáránlegt að vera með í höndum og
umræðu þær gífurlegu tölur sem við gerum nú með verðgildi langt fyrir
neðan krónufjöldann. Lágt verðgildi eins og við höfum búið við leiðir til
virðingarleysis fyrir einingunni og þannig til skeytingarleysis um gjaldmiðilinn
sem slíkan. Þyngri króna getur, ef vel tekst til, verið áfangi í þeirri viðleitni að
gera þjóðfélagið traustara og eftirsóknarverðara í sambúð. Þetta verður þó
skammgóður vermir, ef gengissig og gengisfellingar ásamt óðaverðbólgu fær að
grassera áfram og gera góðar meiningar að engu.
Við skulum vona hið besta, og í trausti þess óskar Úrval lesendum sínum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, um leið og það þakkar samfylgdina á
árinu 1980. *
Ritstjóri.
Kápumyndin:
Veturinn hefur verið mildur og geðgóður það sem af er. Það sýnir þessi ungi
gráreynir sem stendur undir föli vetrarins.