Úrval - 15.12.1980, Side 27
65 MILLJÓN KONUR VILJA MANNINN MINN
25
tilbúin til þessa leiks. Við hjónin
átum kvöldmatinn milli þátta í
sjónvarpinu. Krakkarnir rápuðu út og
inn. Ég þurfti að falda föt, ræða mál
Qg taka ákvarðanir. Eg vissi raunveru-
htga ekki á hvaða stigi samband okkar
Tar fyrr en ég reyndi að nudda á
honum hálsinn og hann sagði: „Ég
skal spara þér fyrirhöfnina. Veskið
mitt er á borðinu.”
Ég sneri mér aftur að sauma-
skapnum. Um klukkan eilefu fór
eldvarnarflautan í svefnherberginu
okkar af stað. Við þutum inn í
herbergið nógu snemma til að sjá
þunna, rauða náttkjólinn minn loga
upp út frá hitanum af ljósaperunni.
„Hvers vegna hangir náttkjóilinn
yfir ijósinu?” spurði maðurinn minn.
, ,Ég er að skapa hughrif.
„Til að gerahryllingsmynd?”
„Ég ætlaði að gera herbergið
aðlaðandi til ástarleikja.
„Opnaðu gluggann. Ef það verður
meira kynæsandi hér líður yfir mig. ”
Það leið klukkutími áður en við
höfðum loftað út og gátum farið í
rúmið.
„Hringdirðu í mig í dag, eða var
það ímyndun?” spurði hann.
„Ég hringdi.”
„Hvað vildirðu?”
„Mig langaði til þess að þú kæmir
snemma heim og við gætum haft það
notalegt saman.”
,,Þú hefðir átt að skilja eftir
skilaboð,” geispaði hann og skreið
uppí.
Ég kveikti á Ijósinu í baðher-
berginu. Á speglinum stóð ennþá: 65
MILLJÖN KONUR VILJA MANN-
INN MINN!
Ég tók fram svitalyktareyði og
skrifaði undir: HVERS VÉGNA? ★
Kona nokkur sagðist oft öskra þegar hún færi í bíó. Sérstaklega ætti
það við þegar myndin væri léleg og miðarnir á hækkuðu verði.
E. V.
Við hjónin fórum út að skemmta okkur. Við skruppum á barinn en
héldumst ekki við í salnum innar af, vegna ærandi popptónlistar.
Þess vegna reis maðurinn minn á fætur til að bera fram kvartanir, en
hann hætti við það þegar hann sá áletrun yfír barnum svohljóðandi:
„Ef þetta er of hátt, ert þú of gamall. ”
— P. M.
Ameríkanar eru mestu ísætur í heimi. Hver íbúi þar innbyrðir 24,63
lítra árlega, næstir í röðinni eru íbúar Ástralíu með 21,14 lítra og
þriðju hæstu eru Nýsjálendingar með 20,54 lítra á hvern íbúa.
— Parade.