Úrval - 15.12.1980, Page 43

Úrval - 15.12.1980, Page 43
ÞAD SEM BARN KANN 41 inn í þau fyrir 10 til 15 sinnum meiri þrýstingi heldur en síðar verður, þegar öndunin er komin í eðlilegt horf. Ótalið er allt það álag sem heili, hörund og ltkamsfrumur barnsins verða fyrir. Þar á meðal eru hitabreytingar og flæði óþekktra hljóða og lita, svo og skær birta eftir algert mykur. Það er þannig sem hinum nýkomna er fagnað á reikistjörnunni okkar sem á að verða heimkynni hans. Eftir að hann er kominn í heiminn verða miklar breytingar á öllum höfuðþáttum lífsstarfsemi hans, þar á meðal viðhaldi stöðug- leika innri starfsemi, ónæmisverndar og efnaskipta. Allra fyrstu andartökin eftir fæðingu eru erfiðust. Hversu yfir- gefín og átakanlega hjálparlaus virðist þessi litla manneskja ekki vera í höndum þessa hvítklædda fólks umhverfís hana! Veikburða og vanmáttug að þola þyngdarafl jarðar- innar. Og vegna nýrra utanaðkom- andi áhrifa sprikla limir hennar með kynlegum, ósjálfráðum rykkjum. Er kannski hægt að liðsinna á þessu erfíða skeiði? Fyrst urðu vísindamennirnir að komast að því, hverju hið nýfædda barn líktist í reynd: Smáböggli með óþroskaðar eðlishvatir, eða vem gæddri æðri þroska? Þeir uppgötvuðu að skynjunar- og til- finningasvið barnsins var víðtækt, það var til dæmis gætt frumatriðum þess, sem kalla mætti tímaskyn. Fyrsta tónlistin, sem fóstrið heyrir, er hjartsláttur móðurinnar. Það lærir að þekkja rólega, taktfasta hrynjandi og sýnir ótvíræða svörun við henni. Vísindamenn gerðu eitt sinn eftir- farandi tilraun. í herbergi, sem í vom nokkur nýfædd börn, léku þeir til skiptis tvær segulbandsspólur, aðra með hjartslætti rólegrar móður, hina með hjartslætti uggandi móður. Niðurstöður tilraunarinnar vom ótvíræðar: Þótt hljóðstyrkurinn væri hinn sami I báðum tilfellum, þá róaði róiegi hjartslátturinn jafnvel grátgjöm- ustu böm, en „hættumerkin” röskuðu jafnvel jafnvægi hinna „lömsm”. Bregðum upp kunnuglegri mynd af barni í örmum móður sinnar. Eym þess nema hjartslátt hennar jafn- greinilega og læknir, sem beitir hlust- unarpípu. Fyrir því hefur náttúran séð. Hrynjandi hjartsláttar móðurinnar venur barnið við að skynja allan hljóðheiminn. Hæfíleikinn til þess að greina hrynjandi er aðeins hluti txma- skynsins, semþroskast með þjálfun. Vísindamenn ákváðu að innræta barni bráðnauðsynlega hrynjandi snemma á þroskaskeiði þess. Eins og kunnugt er, er það fyrst á fimmta eða sjötta degi eftir fæðingu, sem líffæri barns sýna merki þess að vera tilbúin að nýta fæðu á ákveðnum tíma dags. Þessi mikilvægi eiginleiki verður ekki til sjálfkrafa heldur er ávöxtur nákvæms kerfis fæðugjafar. Prófessor Irina Jelizarova, stjórn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.