Úrval - 15.12.1980, Side 52

Úrval - 15.12.1980, Side 52
50 ÚRVAL um hinn ósæranlega Akkíles. Hins vegar telja aðrir sig finna vissa líkingu með henni og krossfestingu Jesú. Kjarninn er kunnur frá mörgum hlutum heims, og sumir afrlskir ættbálkar trúa því statt og stöðugt að vissir höfðingjar geti aðeins dáið af völdum örva úr mistilteini. Öldum saman hefur mistilteinninn verið talinn planta sem hefði ýmiss konar dulræna eiginleika. Hinir gömlu Grikkir notuðu hann sem móteitur, en aðrir ættflokkar trúðu því að hann gæti opnað skrár og lása og verið vörn gegn eldsvoða. Þá var algengt að bæði karlar og konur bæru armbönd með litlum útskornum verndargripum úr mistilteini. Einnig var það venja margra að hengja mistiltein undir þak húsa sinna til þess að verja þau gegn seiðskröttum og illum öndum. I Gallíu hinni fornu, Englandi og Irlandi var mistilteinninn tákn hugrekkis, hreysti, frjósemi og heppni. Hinir hvítklæddu prestar, Drúídarnir, klifruðu upp í trén, hjuggu hann niður með gullsigð og sveipuðu hann inn í hvítan dúk. I Aargau-sýslu í Sviss skutu menn mistilteininn niður með ör og boga, og þeim skotmanni sem tókst að grípa þennan galdrarunna með vinstri hendi hafði tekist að eignast dularfullt meðal, undursamlegt algilt meðal gegn öllum barna- sjúkdómum. I Holtsetalandi boðaði það veiði- gæfu að hafa litla grein af mistilteini í hatti sínum. Annars staðar skreyttu bændurnir þá kú sem bar fyrsta kálfi ársins með mistilteins-greinum og væntu að það myndi veita þeim gæfu. Mistilteini var líka blandað í heyið og dreift yfir akurlöndin á vorin til þess að tryggja góða uppskeru. Gömlu mennirnir töldu plöntuna hafa sömu eiginleika og skeifu, fjögurra laufa smára og spákvist. Karlmenn báru litla grein í hnappa- gatinu og bjuggu til sköft á hnífa sína úr gildari greinum. Og ef hengdur var mistilteinsvöndur yfir inngöngu- dyr þýddi það að gestir voru velkomnir til ánægjulegrar samveru- stundar, þar sem yrði létt hjal og mikið leikið og sungið. Af því að þessi planta óx yfirleitt svo hátt uppi og féll aldrei niður var litið á hana sem gott meðal gegn niðurfallssýki eða flogaveiki. Konur, sem gátu ekki eignast börn, báru greinabrot úr mistilteini sem festi um hálsinn. Og ef menn settu grein undir koddann að kvöldi myndu draumar þeirra rætast. Á síðari tímum hefur lækninga- mætti mistilteinsins verið hafnað og hann yfirleitt talinn hjátrú. Þó eru þar ekki allir á einu máli þvf að nýlega mælti breskur sérfræðingur í beinasjúkdómum svo fyrir að sjúklingar sem þjáðust af þrautum og stirðleika vegna liðagiktar í mjöðmum skyldu fá sprautur með mistilteinaseyði. En til er önnur tegund af mistil- teini sem aldrei er getið í goðsögnum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.