Úrval - 15.12.1980, Page 88

Úrval - 15.12.1980, Page 88
86 URVAL þátttöku í þessari leit og kvaddi. En Abgarus, sá elsti, sem beið þar til allir hinir voru farnir, sagði alvarlegur: „Sonur minn, verið getur að ljós sannleikans sé í þessu merki sem birst hefur á himninum; en það getur aðeins verið skuggi ljóssins eins og Tigranes sagði. En það er betra að fylgja aðeins skugga þess besta en að sætta sig við hið versta. Og þeir sem vilja sjá undursamlega hluti verða að vera reiðubúnir að ferðast einir. Ég er of gamall fyrir þessa ferð, en hjarta mitt mun fylgja þér í þessari pílagrímsför þinni, jafnt á nóttu sem degi. Farðu í friði.” Þannig gengu þeir einn á eftir öðrum út úr bláa herberginu með silfurstjörnunum og Artaban var einn eftir. Langa stund horfði hann á eldinn sem reis og hneig á altarinu. Síðan lyfti hann þungu henginu og gekk milli rauðu porfýri- súlnanna út á þaksvalirnar. Kuldinn, sem fer um jörðina þegar hún vaknar afnætursvefni sinum, var þegar skollinn á og svalur vindurinn sem boðar komu dögunar nálgaðist ofan frá snjóbreiðum Orontes fjalls. Hálfvakandi fuglar, sem héldu sig í skrjáfandi laufinu, létu í sér heyra og lyktin af þroskuðum vínberjum barst í bylgjum upp frá laufskálunum. Yfir sléttuna í austri teygði sig hvítt mistur eins og stöðuvatn. En þar sem fjarlægir tindar Zargos sköguðu upp i sjóndeildarhringinn í vestri var himinninn heiður. Júpíter og Satúrnus nálguðust hvor annan, eins og blikandi logar, í þann veginn að sameinast. Meðan Artaban horfði á þá sá hann bláan neista kvikna í myrkrinu fyrir neðan, hann myndaði um sig purpurarauðan ljóma og varð að eld- rauðri kúlu, ólgaði síðan upp gegnum saffrangula og appelsínugula geisla og endaði sem hvítur glitrandi punktur. Lítill og óendanlega fjarlægur, en samt svo fullkominn, sindraði hann í víðáttunni eins og hinir þrír eðalsteinar Artabans hefðu runnið saman og ummyndast í logandi ljós. Hann beygði höfuðið. ,,Þetta er merkið,” sagðihann. „Konungurinn kemur og mun fara til móts við hann.” Við fljót Babýlóníu Alla nóttina hafði Vasda, fráasti færleikur Artabans, beðið söðluð og beisluðu í hesthúsinu. Hún krafsaði í jörðina og hristi mélin óþolinmóð. Áður en fuglarnir voru teknir að syngja fjörugan morgunsöng sinn og áður en móðan var farin að lyfta sér letilega af sléttunni, var fjórði vitringurinn sestur í hnakkinn og reið hratt í vestur, eftir þjóðveginum meðfram rótum Orontes fjalls. Á langri ferð er sambandið milli mannsins og eftirlætishestsins hans mjög náið. Þeir drekka úr sama læknum, sofa undir sömu leiðar- stjörnunum. Húsbóndinn deilir kvöldmáltíð sinni með svöngum félaga sínum og fínnur mjúkan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.