Úrval - 15.12.1980, Síða 92

Úrval - 15.12.1980, Síða 92
90 ÚRVAL Artaban settist niður og huldi höfuð sitt í örvæntingu. „Hvernig get ég farið yfir eyði- mörkina,” sagði hann, matarlaus og með örþreyttan hest? Ég verð að snúa aftur til Babýlon, selja safírinn minn og kaupa úlfaldalest og matarbirgðir til ferðarinnar. Aðeins hinn miskunnsami Guð mun vita hvort ég missi af kónginum vegna þess að ég tafðist við líknar- verk.” Fyrir lítið barn Það var þögn í Höll draumanna. Og í gegnum þögnina sá ég, óskýrt þó, fjórða vitringinn á leið yfir tilbreytingarlausar öldur eyðimerkur- innar. Hann sat uppi á úlfalda sínum og ruggaðist áfram eins og skip á bárum. Land dauðans breiddi miskunnar- laust net sitt allt í kringum hann. Grýtt auðnin bar ekki annan gróður en villikvisti og þyrna. Fyrir framan hann reis þurr og ógnvekjandi fjall- garður, sundurskorinn af farvegum löngu uppþornaðra vatnsfalla. Foksandhæðir voru í röðum eins og grafhýsi úti við sjóndeildarhringinn. Á daginn lagði brennandi hitinn óbærilegt farg á titrandi andrúmsloft- ið; og engin lifandi skepna hreyfði sig nema stökkmýs sem skutust í gegnum skrælnaða runnana eða eðlur sem hurfu ofan í klettaskorur. Á næturnar reikuðu sjakalarnir um og spangóluðu í fjarska, en nístandi kuldi tók við af hita dagsins. I gegnum hita og kulda hélt Magiinn áfram. Síðan sá ég alblómga aldin- og skrúðgarða Damaskusborgar, vökvaða með vatni Abana og Farpar. Ég sá langan og snævi þakinn hrygg Hermonfjalls, dökka sedruslundi, Jórdandal, blátt Galíleuvatnið og langt í fjarska hálendi Júdeu. I gegnum allar þessar myndir hélt Artaban stöðugt áfram. Að lokum kom hann til Bethlehem, þreyttur en fullur vonar, með rúbíninn sinn og perluna, sem hann ætlaði að færa konunginum. ,,Því nú,” sagði hann, ,,mun ég áreiðanlega finna hann, þó að ég sé einn og seinni en bræður mínir. Götur þorpsins voru auðar og yfirgefnar. Út um opnar dyr á lágum steinkofa heyrði Artaban kvenrödd, sem söng blíðlega. Hann gekk inn og sá unga móður raula róandi við barn sitt. Hún sagði honum frá útlendingunum að austan, sem höfðu birst í þorpinu fyrir þremur dögum og sögðust hafa fylgt stjörnu til þess staðar sem Jósef frá Nasaret dvaldist ásamt konu sinni Maríu og nýfæddum syni þeirra, Jesú, og þeir höfðu sýnt barninu lotningu og lagt gull, reykelsi og myrru að fótum þess. , ,En ferðalangarnir hurfu aftur eins snögglega og þeir höfðu birst. Okkur stóð beygur af þessari furðulegu heimsókn. Fjölskyldan frá Nasaret flúði á laun þá um nóttina og það var
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.