Úrval - 15.12.1980, Page 96

Úrval - 15.12.1980, Page 96
94 þess að finna nokkra vísbendingu um fjölskylduna, sem hafði flúið frá Betlehem fyrir svo löngu. En nú var eins og hann yrði að gera eina tilraun enn. Börn ísraels, dreifð um öll lönd veraldar, höfðu nú komið til musterisins til þess að taka þátt í páskahátíðinni. Borgin var full af útlendingum og í dag beindist athygli allra að einum atburði. Dulúðug hula hvíldi yfír himninum og mannfjöldinn var spenntur. Smellir í sandölum og þungt hljóðið, sem myndast þegar berir fætur strjúkast yfír steina, glumdi stöðugt í götunni sem lá að Damaskushliðinu. Artaban kom auga á hóp manna frá sínu eigin heimalandi, parþverska gyðinga, og spurði þá hvert þeir væru að fara. ,,Til staðar sem nefnist Golgata, fyrir utan borgarmúrana,” svöruðu þeir. „Hefur þú ekki frétt af því? Það á að krossfesta tvo fræga ræningja og með þeim mann að nafni Jesús frá Nasaret, sem hefur unnið mörg dásamleg verk meðal fólks. En prest- arnir og öldungarnir segja að hann verði að deyja vegna þess að hann kallar sig son Guðs. Og Pílatus hefur sent hann á krossinn vegna þess að hann sagðist vera konungur gyðinga.” En hvað þessi orð hljómuðu kunnuglega í öldnu hjarta Artabans! Þau höfðu fylgt honum alla ævi, á láði og legi. Gat þetta verið sá sami og átti fæðingarstjörnuna og sem ÚftVAL spámennirnir höfðu sagt fyrir um? Hjartsláttur Artabans varð óreglu- legur afæsingi. „Leiðir Guðs eru furðulegri en hugsanir mannanna,” hugsaði hann með sjálfum sér. „Verið getur að ég fínni kónginn að lokum, þó hann sé í höndum óvina sinna, og að ég komi á réttum tíma til þess að bjóða perluna mína sem lausnargjald fyrir hann áður enhann deyr.” Gamli maðurinn fylgdi því múgnum í áttina að Damaskus- hliðinu. Rétt við innganginn að varðmannaskýlinu kom flokkur makedónskra hermanna niður götuna og drógu þeir með sér unga stúlku í rifnum kjól. Þegar Magiinn stansaði kom hún auga á hvíta húfuna og vængjamerkið á brjósti hans og sleit sig lausa af kvölurum sínum. Hún fleygði sér að fótum hans og greip um hné hans. ..Vertu miskunnsamur,” grátbað hún, ,,og bjargaðu mér í nafni Guðs hreinleikans! Faðir minn var parþverskur kaupmaður en hann er látinn og ég er tekin upp í skuldir hans til að selja mig sem ambátt. Bjargaðu mér!” Artaban titraði. Það var gamla togstreitan í sál hans milli þess sem trúarbrögðin kröfðust og þess sem kærleikinn bauð honum. Tvisvar hafði hann látið frá sér gjöf sem hann hafði helgað trú sinni, til þess að hjálpa mönnum — í pálmalundinum við Babýlon og f kofanum í Betlehem. Þettavar þriðja prófraun-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.