Úrval - 15.12.1980, Síða 110

Úrval - 15.12.1980, Síða 110
108 URVAL En Feneyjar eru fyrst og fremst höfuðborg síkjanna. Þær eru borg þar sem aðalstrætið er hinn mikli Grand Canal, en hann er yfir 60 metrar á breidd. Feneyjar eru borg þar sem fólkið annaðhvort gengur eða siglir, það ekur aldrei. Upp og niður Grand Canal, sem bugðast mjúklega um fjögurra kílómetra leið ferðast daglega um 70.000 manns, annaðhvort með vatna-leigubílunum eða með vatna-strætisvögnunum. Þessir strætisvagnar fara þarna um á tíu mínútna fresti, og skila þér hvert á land sem þú vilt meðfram síkinu fyrir aðeins 100 krónur. Feneyjar em alltaf paradís hins fót- gangandi vegfaranda. Þegar hinn fót- gangandi kemur til dæmis að síki finnur hann undantekningarlaust litla, bogadregna brú sem gerir honum kleift að komast yfir á hinn bakkann. I fyrstu virðist þrönga gatnakerfið annars vegar og bugðótt síkin hins vegar óendanlega ruglandi. Samt sem áður kemur skilningurinn ótrúlega fljótt og áður en ég veit af er ég farin að ganga 10 til 15 kílómetra daglega, og meira að segja án þess að villast of oft. Ég kem auga á rennilegan, skínandi gondól, konunglegan sem svartan svan, þar sem hann á faglegan hátt skríður á milli hárra, dökkra veggjanna. Innan við smíðajárns-hlið sé ég hellulagðan bakgarð, aldur hellnanna gerir það að verkum að þær glansa, eða það af þeim sem sést fyrir burknum og laufskrúði. Frá litlu kaffihúsi berst kaffiangan. Ég heyri fjarlægt kall stýrimanna gondólanna: „Gondola! Gondola!” Ég fylgist með feneysku húsmæðmn- um, þar sem þær á vandfýsinn hátt velja sér ávexti og grænmeti úr ávaxta- og grænmetisbátnum, þær em allar með skuplu um hárið. Þá sé ég þvottabát sigla hratt hjá með stafla að nýstraujuðum þvotti hótelanna. Þetta em einföldu hlutirnir. Það sem laðar hjarðir ferðamanna til Feneyja ár hvert em hinar nafntog- uðu og frægu menjar þeirra: breiða, marmaralagða Ríalto brúin yfir Gand Canal, með öllum sínum fornu verslunum, hin mæðulega Bridge of Sighs (Brú stunanna) sem eitt sinn þjónaði því hlutverki að tengja dómsalinn og dýflissuna, þannig að fangar þeir er dóm hlutu gengu um hana á leið til dýflissunnar; höllin stórkostlega, Doge’s Palace sem hlaðin er úr hvítum og bleikum steini, með framhlið skreytta litkrítar- myndum sem skiptast niður á 70 boga, en höllin hvílir öll á 36 út- skornum marmarasúlum; og síðast en ekki síst laðar Torg heilags Markúsar ferðamennina til sín. Torg þetta er rúmur hektari og er það óumdeilanlega miðpunktur alls mannlífs Feneyja. Við torgið rís Campanile turninn um 100 metra hár og virðist hann fylgjast góðlátlega með iðandi mannlíflnu á torginu. Verslanir í marmaraboga- göngum umlykja torgið á þrjár hliðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.