Úrval - 01.02.1982, Page 12
10
ÚRVAL
eru að reyna að koma lífi sínu 1 réttar
skorður á nýjan leik. „Þessi reynsla
okkar kenndi okkur margt um
dauðann,” segir Barry. ,,En hún
kenndi okkur enn meira um sjálf
okkurogumlífið.” ★
>í£>(g>fA
Allir rithöfundar óttast að verkum þeirra verði hafnað. Tímarit í
Kína, sem skrifar um hagfræði, hefur komið sér upp bréfi sem stíll er
yfir til að senda þeim sem það þiggur ekki handrit af: ,,Við höfum
lesið handrit yðar með takmarkalausri ánægju. Ef við birtum verk
yðar væri okkur ógerningur að birta nokkurt verk af lægri gráðu. Það
er óhugsandi að við sjáum jafnoka verks yðar næstu þúsund árin og
erum við því neyddir til að endursenda þetta frábæra verk yðar og
biðja yður að afsaka þúsund sinnum hve skammsýnir og uppburðar-
litlir við erum.”
— Playboy Magazine
Meðan verið var að kvikmynda That Hamilton Woman kom
Alexander Korda að Laurence Olivier þar sem hann var aðeins hálf-
klæddur fyrir hlutverk sitt sem Nelson.
,,Ég er með spurningu,” sagði Olivier, ,,hvorn handlegginn og
hvort augað vantaði Nelson?”
Enginn vissi svarið. Af því að það var sunnudagur virtist ólíklegt að
nokkur fyndist sem gat munað þetta þar til einhver mundi eftir
gömlum lögregluþjóni sem hafði leikið Nelson í stykki sem gekk
lengi.
Bíll var sendur eftir manninum. Þegar maðurinn kom í
kvikmyndaverið hefur hann kannski haldið að nýtt tímabil í
leiklistarsögu hans væri að hefjast eftir áratuga gleymsku. Korda
lagði handlegginn yfir axlir hans og sagði: „Gamli vinur, þú lékst
Nelson. Geturðu sagt okkur hvorn handlegginn og hvort augað hann
vantaði?”
Gamli maðurinn starði hlessa og óviss á Korda. Svo sagði hann
eftir nokkurt hik: ,,Satt best að segja er erfitt að muna það. ’’
, ,Reyndu, ’ ’ sagði Korda. ,, Gerðu það, reyndu. ’ ’
, Jæja,” svaraði maðurinn. ,,Ég man að það var leiðigjarnt að hafa
það alltaf eins, þess vegna hafði ég stundum vinstri handlegginn
falinn og bundið yfir hægra augað og svo þveröfugt næsta kvöld. ’ ’
— Michael Korda