Úrval - 01.02.1982, Page 18

Úrval - 01.02.1982, Page 18
16 ÚRVAL hún ekki einu sinni Karl. Eftir að hann hefur hagrætt henni í rúminu og gefið henni eplasafa jafnar hún sig. Hún er þó ekki lengur fær um að fara ein á klósettið og Karl vaknar á þriggja tíma fresti til þess að gefa henni morfínið og snúa henni í rúminu. 28. febrúar 1981 aukast þjáningar Mary enn. Hún á erfítt með að anda og púlsinn er hraður. Stundum er hún svolítið rugluð. ,,Mér er heldur að versna, ” segir hún við Karl. 2. mars 1981 hefur Mary versnað. Nú á hún aðeins fáa daga eftir. Hún er tilbúin og henni hefur létt en nú verður hún allt í einu miður sín af því að hún sé til óþæginda. Ætti hún ekki að fara á sjúkrahúsið? Florence ræðir málið við Karl sem fullvissar Mary um að hann sé fullfær um að annast hana. Florence útvegar 8 klukkustunda heimilishjálp fyrir þau dag hvern til þess að létta undir með Karli. Það er kvöld. Mary er mun hressari. Séra Charles Rodrigues prestur þeirra. kemur í heimsókn. ,,Charles, þú veist að ég er að deyja,” segir hún. ,,Ég er alls ekki hrædd.” Karli líður miklu betur þegar hann heyrir hana segja þetta. 3. mars 1981 kemur drengur í heimsókn, fulltrúi barnanna í kirkj- unni. Hann færir Mary kort og tólf rósir. Karl er að koma blómunum fyrir í eldhúsinu þegar Matt kemur og biður um að fá eina rós. Síðar gefur hann móður sinni rósina og kort með henni. Á það hefur hann teiknað sjálfan sig með útbreiddan faðminn, eins og hann var vanur að koma til hennar þegar hann var mjög lítill og segja: ,,Ég elska þig mamma, svona mikið.” 5. mars 1981 eru kvalir Mary óendanlega miklar. Karl hringir til hjálparsamtakanna og spyr hvort ekki sé í lagi að hann gefí henni morfín- sprautu. Florence býðst til þess að koma við hjá þeim nokkru seinna en Karl segir: „Heyrðu mig, Florence, ég held bara að þú þurfir ekki að koma. Allt gengur bærilega hér.” Florence leggur ekki hart að honum. ,,Mary er að deyja og þau komast af án minnar hjálpar,” segir hún. 8. mars 1981 hefur Mary rúmlega 40 stiga hita og er með óráð annað slagið. Fólkið hennar — systir, bróðir, faðir og frænka — koma til þess að kveðja hana. 9. mars 1981 er Karl áhyggjufullur út af því að drengirnir kynnu að verða hræddir ef móðir þeirra deyr heima hjá þeim. Hann veltir því fyrir sér hvort hann eigi að flytja hana á sjúkrahúsið. Samt heldur hann að hún vilji enn vera heima hjá þeim. Mary er eins og í draumaheimi, svarar ekki eða sýnir viðbrögð. Á meðan Karl er að ræða við hjúkrunarkonuna, Ruth Mulhern, vaknar hún allt í einu til lífsins á ný. Nú er kominn tími til þess að hún fari á sjúkrahúsið, segir hún. Hún þakkar Karli fyrir allt sem hann hefur gert fyrir hana og segir honum að hún elski hann.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.