Úrval - 01.02.1982, Page 22

Úrval - 01.02.1982, Page 22
20 ÚRVÁL öllum mætti við að komast undan eftir samanföllnum snjógöngum. Eftir þetta var alls staðar hægt að sjá refínn. Við kölluðum hann „draug-1 inn vinalega”. Næsta dag stóð snjókoma af hafi og við rákumst næstum á ísbjöm sem þessa stundina mátti vart greina, nema ef vera skyldi svart nefíð. Honum brá líka og gaf frá sér hljóð svo við hörfuðum aftur á bak í skelfmgu. En hann var jafnvel hræddari en við og hljóp í burtu. Hver dagur rann upp með fyrirheit um eitthvað nýtt og óvænt. Einn dag- inn kom skýfall af snjótittlingum nið- ur úr hvítum himninum, líkast því að þar féllu krónublöð af fjarlægu blómi. Snjótittlingarnir settust alls staðar og byrjuðu að grafa eftir fræ- kornum frá liðnu sumri, greinilega mjög hungraðir. Það hafði byrjað að þiðna, hægt og rólega, en nú breyttist þíðan í suð, skvamp og á fáeinum dögum í beljandi straum snjó, íss og eðju. Það brast og small í ísnum dag og nótt. Gæsir komu og settust þar sem vatnselgurinn breikkaði. Læmingjarnir, sem voru skelfmgu lostnir þegar snjógöngin þeirra eyði- lögðust, komu hlaupandi inn í tjaldið á flótta undan hröfnum, refum og fótfráum hreysiköttum. Einn heimurinn var lagður í rúst fyrir augum okkar á meðan annar reis. Við sáum hreysikött, sem enn var að hálfu leyti klæddur vetrarfeldi sínum, eltast við héra. Við fylgdumst náið með eltingaleiknum — beittar tennurnar stungust á kaf í hálsinn, blóðið spýttist út. Geislandi skær birtan gerði allt svo miklu stærra og veitti okkur nýja innsýn í það sem fyrir augu bar. Heimskautsnáttúran kenndi okkur að sjá, heyra og finna fyrir öllum hlutum á nýjan og gjörólíkan hátt frá því sem verið hafði. Þetta var líkast endurfæðingu — eins og að flytjast skyndilega til annarrar plánetu þar sem fyrra líf okkar skipti ekki neinu máli lengur. Að kvöldi komu hópar smáfugla og flugu í hringi yfir búðum okkar: strandfuglar aðallega, fuglar sem venjulega héldu sig við strendur, tjarnir og árbakka austurstrandar- innar, við Mexíkóflóa og í Karabíska hafinu, frá Suður-Ameríku og frá Aftíku og meira að segja allt frá suðurheimskautinu. Fagur söngur þeirra örvaði ímyndunarafl okkar. Fjallalævirkjar og fjallatittlingar svifu yfir. Vængirnir hreyfðust svo hratt að vart mátti auga á festa. Söngur þeirra fyllti loftið. Gæsir og endur sungu bassann. Smátt og smátt fórum við að gera okkur grein fyrir hve tíminn er dýrmætur. Ekki voru hér nema 60 íslausir dagar og þessum fuglum gæfist því ekki kostar á að verpa í annað sinn. Ef egg brotnuðu, eða hrafnar eða hreysikettir kæmust yfir þau, var ekkert við því að gera. Jim
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.