Úrval - 01.02.1982, Side 23

Úrval - 01.02.1982, Side 23
TÖFRAR HEIMSKA UTA VORSINS 21 komst að raun um að hann gat auð- veldlega tekið sendlingana upp af hreiðrum þeirra. Þeir sátu í lófa hans eins og þeir lægju enn kyrrir á eggjunum sínum. Rjúpa lagðist tígu- lega á stígvélið mitt til þess eins að hindra mig í að koma of nærri hreiðri makasíns. Hvað átu fuglarnir? Svarið var að finna í jörðinni sjálfri. Skordýr ein geta lifað af heimskautaveturinn og verið nægilega fljót að fjölga sér til þess að fæða þennan mikla fugla- skara sem kemur norður á bóginn til þess að verpa. Sundhanar frá Afríku lentu á grunnum tjörnum, hring- snemst og hrærðu upp moskító- lirfum sem þeir svo tíndu upp með nefinu. Fullorðnar moskítóflugur mynduðu ský yfir grunnum tjörnunum og ráku fuglana upp af hreiðrum sínum í leit að máltíð. Þær gerðu okkur lífið leitt og sömu sögu var að segja um flugurnar. Hvenær svo sem svalur vindurinn blés yfir höfðann dösuðust flugurnar og moskítóflugurnar og urðu um leið auðveld bráð fuglanna. Bjöllur, gljáandi á búkinn, flýttu sér í gegnum túndmgrasið. En þær lentu í klónum á risakóngulóm sem flæktu fórnardýrin í silkineti sínu. Syfjulegar hunangsflugur komu upp úr gömlum læmingjaholum til þess að láta fara vel um sig meðal draum- sóleyja og fífu, steinbrjóta og blóma berjalyngsins. Allt x einu datt mér í hug að skera í gegnum þumlungsgildan stofn víði- hríslu, sem var aðeins fet á hæð, og sýndi Jim þéttan viðinn þar sem árhringirnir mnnu hver í annan. ,,Kannski er hríslan 400 til 500 ára gömul,” sagði ég. ,,Columbus,” sagðijim. Ég kinkaði kolli. Ef þetta tré hafði sprottið upp af fræi á þessum eyðilega stað árið sem Columbus kom til Nýja heimsins hékk lífið hér á heimskauta- svæðinu síður en svo á bláþræði eins og við höfðum haldið. Það var tryggi- lega um það búið í milljón alda gömlum vefi. Hér, þar sem líf og dauði skiptust á, var hvert dauðsfall þýðingarmikið. Neyðaróp kvað við ofan úr dimm- bláum himninum. Islandsfálki hafði barið niður hraðfleygan kjóa. og réðst að honum á yfir 240 kílómetra hraða. Kjóinn hringsnerist í loftinu x fjaðradrífu. Læminginn, sem hann hafði haldið á, féll en fálkinn var ekki lengi að grípa hann og fljúga með hanní burtu. Heimskautið var að reyna að segja okkur að hræðsla okkar við dauðann væri á misskilningi byggð, við skildum ekki tilgang lífsins. Læmingjunum fækkar ekki þrátt fyrir blóðbaðið, þeim fjölgar augsýnilega, hver ættliður tekur við af öðrum. Þeir voru í reynd uppspretta svo að segja alls annars lífs á þessum slóðum. Á meðan náðu enn aðrir unglingar fullorðinsaldri. Andarungar, sem höfðu ekki verið annað en fiður- hnoðrar á gmnnum tjörnum, voru farnir að reyna vængina. Gæsarungar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.