Úrval - 01.02.1982, Qupperneq 28
26
ÚRVAL
ir sem fylgdi óvænt uppbót. 12 af
kúnum voru með kálfum.
Roller hefur líka lært af reynslunni.
Það er ekki alltaf hægt að dæma ríkis-
eignir eftir því sem skráð er í tölvu-
skrárnar.
Einna ánægðastur er hann með það
þegar þjóðvarðliðið hringdi til hans
og bað um jeppa. ,,Mér fannst við
hafa unnið sigur,” segir Roller og
hlær við. ,,Ég hafði haldið að þarna
hringdi sá sem sjálfur ætti að hafa
jeppana.”
Stærsta sigur sinn álítur hann vera
þegar hann fékk 93 metra langt hjóla-
skip með 600 hestafla gufuvél og 21
metra háum reykháfi. Skipið hafði
kostað Bandaríkjastjórn 630 þúsund
dollara þegar það var smíðað árið
1934.1 40 ár hafði verkfræðingadeild
hersins notað það við slæðingar í
Missouri-á. Nú er skipið að minnsta
kosti 5 milljón dollara virði. Roller
þurfti að heyja harða baráttu við
skrifstofubáknið til þess að fá þetta
skip handa Dubuque County
Historical Society sem mun nota það
sem safn. „Þetta var fyrirmyndar
slagur,” segir hann og ánægjan lýsir
af honum.
,,í raun og veru er ég aðeins að
endurnota skattpeninga
almennings,” segir Roller, ,,og
öllum til góðs.” Honum er full-
komlega ljóst hvers konar óskapnaður
kaupstefna hins opinbera getur verið
en hann neitar þó að fara hörðum
orðum um þá sóun og það brjálæði
sem hann verður vitni að. Hann segir
brosandi: , ,Þú kastar ekki gulleggjum
í gæsina sem verpir þeim. ’ ’
★
Árið 1970 keypti Hídeki Jókoí Hótel Funabara í Jugashima í
suðvestur Tókío með öllum útbúnaði, auk22 karata gullbaðkars sem
vegur 156 kíló. Frá þeim tíma hefur hann mokað saman fé. Hann fær
að meðaltali 120 viðskiptavini daglega sem vilja fá að komast í karið
en hverjar fimm mínútur kosta sem svarar 150 ísl. kr. Hann hefur
fengið inn fyrir böðin fímmtánfalda þá upphæð sem karið kostaði
upphaflega. Jókoí segir: ,,Fimm mínútur nægja til þess að bleyta í
sér, fínnast að maður hafí verið eyðslusamur og láta taka af sér
litmynd til minja’ ’ — en hver mynd kostar um 55 krónur íslenskar.
— Sunday Times