Úrval - 01.02.1982, Síða 79
HÖRMUNGAR ROBERTS DILLEN
77
læknishjálpar vegna þess að þú veist
hvað hefur verið að gerast. Megi guð
fylgja þér. Þess muntu þurfa með í
framtíðinni.”
Cim var reið yfír því að dómarinn
skyldi ganga þannig á rétt manns
hennar til að verða dæmdur af
jafningjum. Robert var þreyttur.
Murtagh var ekki eins reiður út af
ummælum dómarans og þvi að yfír-
völd í Venango-héraði höfðu látið
undir höfuð leggjast að fylgja því eftir
að sönnunargögn væru rannsökuð
eins og vera bar.
Lögreglan hafði komið með sýnis-
horn af sæði árásarmannsins og
hárvexti kringum kynfæri hans sem
hvort tveggja var tekið í mótel-
herberginu þar sem stúlkunni var
nauðgað. Murtagh hafði afhent yfír-
völdum hár- og blóðsýni frá Dillen
þar sem hann vissi að nákvæm
rannsókn á sýnunum á rannsóknar-
stofu gæti sannað að þetta væri ekki
frá Dillen.
, ,En glæparannsóknarstofan tók
sýnin ekki til rannsóknar fyrr en
helgina fyrir réttarhöldin,” segir
Murtagh. ,,Þá voru upprunalegu
sýnin orðin of gömul til þess að hægt
væri að rannsaka þau svo vel væri.’’
Fallið var frá öllum kærum á
hendur Dillen eftir að kviðdómur
hafði kveðið upp sinn dóm og frekari
lygamælisprófanir höfðu farið fram.
Hann hafði nú verið hreinsaður af
öllum áburði eftir nær eins árs
þjáningar. En þá gerðist sá hryggilegi
atburður að hjónaband Roberts og
Cim fór út um þúfur.
„Eftir að heilu ári hefur verið eins
og kippt burtu úr lífi manns vill
maður að allt verði eðlilegt á nýjan
leik,” segir Cim nú. ,,Ég vildi það að
minnsta kosti. En lífíð hafði verið svo
óeðlilegt fyrir Bob og svo lengi að
honum stóð orðið á sama. ’ ’
Stöðug áminning
I október 1980 var hringt í Robert.
Það var Murtagh. Enn hafði verið
framið rán í myndabúð skammt frá, í
Crawfordhéraði. Murtagh hafði fyrir
löngu verið búinn að ráðleggja Dillen
að fara frá Pennsylvaniu. ,,Og skildu
hreinlega við þegar þú gerir það,”
sagði hann við skjólstæðing sinn.
Næsta morgun heimsóttu tveir lög-
regluþjónar Dillen. Þeir vildu fá að
vita hvar hann hafði verið á laugar-
daginn klukkan 3 síðdegis. Hann hélt
dagbók yfír allar sínar gerðir og dró
hana nú fram og sagði þeim það
nákvæmlega. Fjarvistarsönnunin
reyndist í lagi. Dillen hugsaði með
sér: Jack hefur é réttu að standa. Fyrr
eða síðar gleymi ég að skrifa eitthvað
niður og þá verð ég handtekinn á
nýjan leik.
Hann pakkaði niður mynda-
vélunum sínum og ók í suður. Hvar
sem hann kom hafði hann mikið fyrir
því að kynna sig fyrir framreiðslu-
stúlkum og mótel-starfsfólki. Hann
fítjaði upp á samræðum við barþjóna
og skildi eftir nafnspjaldið sitt.