Úrval - 01.02.1982, Page 92

Úrval - 01.02.1982, Page 92
90 ÚRVAL ÞANN TÍMA SEM ég hef verið blaðamaður, einkurh eftir að ég varð útgefandi og ritstjóri La Opiniðn, hefur mér margsinnis verið hótað. Einn morguninn komu tvö bréf í einu: annað var frá hægri hryðju- verkasamtökum sem dæmdu mig til dauða vegna þeirrar sannfæringar sinnar að barátta mín fyrir rétti sér- hvers manns til að vera prófaður fyrir löglegum dómstólumog barátta mín fyrir mannréttindum væru þröskuldur í vegi þeirra sem vildu sigrast á kommúnismanum. Hitt bréfið var frá ógnarsamtökum trot- skíista, ERP (Þjóðlega byltingar- hernum), þar sem gefið var í skyn að ef ég héldi áfram að saka vinstri byltingarsinna um að vera fasista og kalla þá „geðsjúklingana til vinstri” yrði ég dreginn fyrir dóm og líklega dæmdur til dauða. Ég var farinn að brjóta heilann um hvorir myndu sitja uppi með skrokkinn af mér — vinstri eða hægri hryðjuverkamenn. Þegar öllu var á botninn hvolft var hér aðeins um einn skrokk að ræða og einn dauður blaðamaður í viðbót í landi þar sem hundrað blaðamenn höfðu horfið á örfáum árum skipti engu til eða frá. Þegar ég stofnaði La Opiniðn hafði ég verið stjórnmálafréttamaður fyrir dagblöð, tímarit, útvarp og sjónvarp í tuttugu og fjögur ár. Fyrsta tölublað blaðsins míns kom út 4. maí 1971 og ég var handtekinn í apríl 1977. Á þessum ríma varð La Opiniðn fyrir refsiaðgerðum (undir sex ríkis- stjórnum í röð) í formi lögsókna, sprengjuárása á heimili mitt og vinnustað, morðs á einum blaða- manna minna (hann hvarf að minnsta kosti) og nú loks með því að ég var tekinn höndum og herinn gerði blaðið upptækt. Lúmskasta refsiaðgerðin var efnahagsleg því þótt það sé ekki á almanna vitorði er fjár- magnið í Argentínu 70% undir stjórn ríkisins; auglýsingar stjórnarinnar skapa verulegan hluta af tekjum hvers blaðs og þeim var kippt til baka í hvert sinn sem eitthvað pirraði þá stjórn sem sat að völdum hverju sinni. ' Ein stjórnin fann upp machíavellíska brellu: Hún skipaði samtökum blaða- dreifingaraðila, sem hún stjórnaði, að krefjast fleiri eintaka af La Opinión en markaðurinn hafði þörf fyrir. Ef við neituðum losaði það blaðadreifingaraðilana undan samningum við okkur en ef við afgreiddum öll þessi ónauðsynlegu blöð myndi það hafa óhæfilegan prentkostnað í för með sér. í hvert sinn sem svona efhahagsrefsingar áttu sér stað leitaði La Opinión til lesenda sinna og hækkaði verðið þangað til það varð dýrasta blað í landinu en samtímis það eina sem var óháð opinberum eða almennum auglýsendum. Þótt merkilegt megi virðast var La Opinión miðstefnublað. En á hverjum degi gerði það nokkuð sem í Argentínu var lagt út sem dauðasynd: Það notaði rétt orð til að lýsa raun-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.