Úrval - 01.02.1982, Síða 106
104
fallegar stúlkur þjóna kynferðislegum
duttlungum þeirra. Þessar stúlkur,
sem sakaðar eru um hryðjuverka-
starfsemi, eru bráðungar, kannski
tuttugu til tuttugu og tveggja ára.
Þær hafa verið pyntaðar og þeim hefur
verið nauðgað og smám saman hefur
þeim verið spillt með því að hagnýta
þá þörf sem fanginn hefur fyrir að
búa sér til einhvers konar von,
einhvers konar raunveruleika annan
en vitskerðingu eða sjálfsmorð. Þessar
'stúlkur langar til að lifa og þær beygja
sig undir líf með ofsækjendum sínum
fremur en einangraða fanganum sem
hefur verið í klefa sínum heilt ár og
heyrist hósta dag og nótt.
Stofnað er til sérkennilegra
sambanda: Ein af stúlkunum,
ástkona foringjans, fékk því fram-
gegnt að faðir hennar var sóttur til að
búa hjá henni. Þau eru í sama klefa
og faðirinn verður að látast vera í
vinfengi við elskhuga dóttur sinnar.
Faðirinn er rafmagnsverkfræðingur
og sér um þau verk sem til falla á því
sviði i Coti Martínez, sérstaklega hvað
snertir ljósin og vélarnar sem notaðar
eru til að gefa raflost. Þetta er heimur
fyrir þá sem hafa annaðhvort gefist
upp eða eru vitstola.
Pyntingarnar fara fram á nóttunni
og þá er tónlist leikin með miklum
hávaða til að yfirgnæfa veinin.
Stundum þarf einhver á staðreyndum
að halda um miðja nótt og þá er sent
eftir mér: Hvenær ákvað Herzl að
stofna gyðingaríki í IJganda? Hver var
ÚRVAL
varnarmálaráðherra í þessari og
þessari ríkisstjórn?
Þeir eru fegnir þegar ég er fluttur
af þessum stað. Einn þeirra segir
brandara: ,,Þegar þú hefur verið
látinn laus læturðu drepa okkur
alla.”
Ástæðan til þess að ég er fluttur'
burtu er sú að yfirvofandi er heim-
sókn Benjamin Gilmans, bandarísks
þingmanns sem hefur fengið áhuga á
máli mínu. Ég er fluttur í stjórnar-
húsið í Buenos Aires þar sem Gilman
á viðræðufund við forsetann. Ég er
varaður við því að viðræður okkar
Gilmans verði teknar upp á segul-
band og þá verður mér ljóst að það er
ekki verið að ógna mér heldur konu
minni og börnum. Svo þarna erum
við, í návist argenrínsks starfsmanns,
og Gilman spyr mig með augunum
meðan ég reyni að svara honum með
mínum. Þessi augnatillit eru öllum
óskiljanleg nema þeim sem einhvern
tíma hafa reynt á sama hátt að tala
með tilliti, nota augun til þess sem á
engin orð sem hægt er að segja.
Rétt eins og það eru engin orð til
að túlka það sem felst í augum föður
sem er slitinn frá syni sínum frammi
fyrir pyntingu. Það er pynting
pyntinganna.
Hvaðeraðskýra?
Allt þar til ég kom fyrir herréttinn
var ég alls óvitandi um fyrir hvað ég
var handtekinn eða hver ákæran á
hendur mér var. Rétturinn er ein-
faldlega haldinn til að skera úr um