Úrval - 01.02.1982, Blaðsíða 106

Úrval - 01.02.1982, Blaðsíða 106
104 fallegar stúlkur þjóna kynferðislegum duttlungum þeirra. Þessar stúlkur, sem sakaðar eru um hryðjuverka- starfsemi, eru bráðungar, kannski tuttugu til tuttugu og tveggja ára. Þær hafa verið pyntaðar og þeim hefur verið nauðgað og smám saman hefur þeim verið spillt með því að hagnýta þá þörf sem fanginn hefur fyrir að búa sér til einhvers konar von, einhvers konar raunveruleika annan en vitskerðingu eða sjálfsmorð. Þessar 'stúlkur langar til að lifa og þær beygja sig undir líf með ofsækjendum sínum fremur en einangraða fanganum sem hefur verið í klefa sínum heilt ár og heyrist hósta dag og nótt. Stofnað er til sérkennilegra sambanda: Ein af stúlkunum, ástkona foringjans, fékk því fram- gegnt að faðir hennar var sóttur til að búa hjá henni. Þau eru í sama klefa og faðirinn verður að látast vera í vinfengi við elskhuga dóttur sinnar. Faðirinn er rafmagnsverkfræðingur og sér um þau verk sem til falla á því sviði i Coti Martínez, sérstaklega hvað snertir ljósin og vélarnar sem notaðar eru til að gefa raflost. Þetta er heimur fyrir þá sem hafa annaðhvort gefist upp eða eru vitstola. Pyntingarnar fara fram á nóttunni og þá er tónlist leikin með miklum hávaða til að yfirgnæfa veinin. Stundum þarf einhver á staðreyndum að halda um miðja nótt og þá er sent eftir mér: Hvenær ákvað Herzl að stofna gyðingaríki í IJganda? Hver var ÚRVAL varnarmálaráðherra í þessari og þessari ríkisstjórn? Þeir eru fegnir þegar ég er fluttur af þessum stað. Einn þeirra segir brandara: ,,Þegar þú hefur verið látinn laus læturðu drepa okkur alla.” Ástæðan til þess að ég er fluttur' burtu er sú að yfirvofandi er heim- sókn Benjamin Gilmans, bandarísks þingmanns sem hefur fengið áhuga á máli mínu. Ég er fluttur í stjórnar- húsið í Buenos Aires þar sem Gilman á viðræðufund við forsetann. Ég er varaður við því að viðræður okkar Gilmans verði teknar upp á segul- band og þá verður mér ljóst að það er ekki verið að ógna mér heldur konu minni og börnum. Svo þarna erum við, í návist argenrínsks starfsmanns, og Gilman spyr mig með augunum meðan ég reyni að svara honum með mínum. Þessi augnatillit eru öllum óskiljanleg nema þeim sem einhvern tíma hafa reynt á sama hátt að tala með tilliti, nota augun til þess sem á engin orð sem hægt er að segja. Rétt eins og það eru engin orð til að túlka það sem felst í augum föður sem er slitinn frá syni sínum frammi fyrir pyntingu. Það er pynting pyntinganna. Hvaðeraðskýra? Allt þar til ég kom fyrir herréttinn var ég alls óvitandi um fyrir hvað ég var handtekinn eða hver ákæran á hendur mér var. Rétturinn er ein- faldlega haldinn til að skera úr um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.