Úrval - 01.02.1982, Síða 125
ÁHÆTTULEIKARAR HOLLYWOOD
123
að gerast?” Hann skellir nokkrum
leikfangabílum í aurinn og sest á
hækjur sér. Hann skýrir skipulag
áhættuatriðisins með því að skutla
leikfangabílunum og litlu vöru-
bílunum um allt eins og knattspyrnu-
þjálfari sem er að setja upp leik.
Það er Dick Ziker, einn besti
áhættuleikarinn, sem á að skipu-
leggja áhættuatriðin í myndinni.
Hann ákveður hverjir sjá um
aksturinn sem sést í baksviðinu og
hverjir eru settir í aðalsýningaratriði,
eins og áhættuatriðin eru kölluð.
Allir áhættuleikararnir, sem hér eru
saman komnir, vilja vera með í
sýningaratriðunum. Þeir hafa ekki
áhuga á að festast í þrautleiðinlegum
baksviðsakstri. Þá langar að sýna
Needham og félögum hans hvað þeir
geta. Þeir eru líka að sækjast eftir
„áhættufúlgunni” — þóknuninni
sem er greidd fyrir áhættuatriði.
Nær allir áhættuleikarar líta á sig
sem atvinnumenn í Iþróttum. Um
það bil 100 þeirra 400 félaga Banda-
ríska kvikmyndaleikarafélagsins, sem
segjast vera áhættuleikarar, lifa góðu
lífi sem slíkir, fá að meðaltali 50.000
til 80.000 dollara árskaup. Aðeins
þeir fjölhæfustu fá hæsta kaupið —
þeir sem eru sérfræðingar á hestum,
bílum eða í falli úr mikilli hæð.
Áhættuleikarar, sem skapað hafa sér
sérstakan stíl og vakið athygli fyrir
glæsileik í atriðum sínum, komast
upp undir 200.000 dollara árstekjur
vegna samningsbundinna greiðslna
sjónvarpsins.
Áhættuleikarar ársins 1920 skipu-
lögðu ekki hættuatriðin. Þeir bara
unnu þau. ,,Á þeim tíma,” segir
Yakima Canutt, 85 ára, áhættuleikari
á eftirlaunum, „vorum við bara með
hlífar á olnbogum og hnjám.” En
Yakima tókst, með því að nýta sér
vélfræðiþekkingu sína, að undirbúa
sýningaratriðin sín svo vel að hann gat
séð nákvæmlega fyrir hvenær hestur
myndi detta og hve langt hestvagn
kæmist. Það er Canutt að þakka að
áhættuatriðin urðu öruggari.
Áhættuleikarar í kúrekahlut-
verkum verða nú orðið að læra ný
atriði eða eiga á hættu að missa
atvinnuna því eltingaleikjamyndir
hafa leyst kúrekamyndirnar af hólmi.
Margir nýju áhættuleikaranna hafa
undirstöðuþjálfun í fimleikum.
Áhættuleikarar nútímans eru x
eldvörðum búningum úr
málmefnum og hafa andlitsgrímur úr
óeldfimum plastefnum svo þeir geta
breyst í lifandi kyndla. Þeir taka sér
stöðu á „lofthrútum” — vélbúnaði
sem stangar þeim hátt í loft upp — í
stað þess að nota stökkbretti. Þegar
þeir fleygja sér fram af stórhýsum
lenda þeir á loftpúðum úr næloni,
sérhönnuðum til að draga úr fallinu.
En þrátt fyrir uppfinningar og
varúðarráðstafanir hafa sex áhættu-
leikarar farist í starfi síðastliðin fimm
ár — fleiri en næstu tíu ár þar á
undan. Auk þess hefur baráttan milli
framleiðenda sjónvarpsþátta og kvik-
myndaframleiðenda um markaðinn
leitt til hættulegri atriða og mikið