Úrval - 01.02.1982, Page 126
124
ÚRVAL
kapp er í áhættuleikurunum um að
henda sér úr sem mestri hæð eða láta
bíla sína þeytast sem lengst.
Dar Robinson, 34 ára að aldri,
heldur því fram að hann hafi 24
sinnum slegið heimsmet í ýmiss
konar áhættuatriðum. Hann ræður
oft allt upp í 11 sérfræðinga í verk-
fræði, loftrúmsfræði og fleiru til að
hjálpa sér að skipuleggja áhættu-
atriði.
En Robinson gerir sér einnig grein
fyrir áhættunni sem hann tekur í
þessum atriðum. ,, Allir þeir sem eru í
bransanum vilja setja heimsmet,”
segir hann. ,,Þess vegna farast
sumir.” Ári áður hafði áhættu-
leikarinn A.J. Bakunas reynt að
hnekkja einu heimsmeti Robinsons.
Hann reyndi að stökkva úr rúmlega
95 metra hæð í kvikmyndinni Steel.
Fólk sá Bakunas lenda í netinu en
netið brást og snerist. Bakunas lést.
Sumir áhættuleikaranna eru enn að
velta bílum á sextugsaldri og margir
þeirra vildu fegnir eyða allri starfs-
ævinni í að leika í áhættuatriðum en
líkaminn bregst þeim. Fæturnir gefa
sig fyrst. Ökklarnir þola vissan
skammt af stökkum og falli. í hvert
sinni sem áhættuleikari veltir bíh
verður hann fyrir hnjaski af höggum,
sama hvað hann er gætinn. Líkaminn
andæfir þessari meðferð. Þegar sumir
áhættuleikararnir em komnir um
fertugt em þeir orðnir svo
þrælnegldir saman að þeir komast
ekki í gegnum málmleitartæki á flug-
völlum.
„Áhættuleikari verður að vera
stórhuga og elska starf sitt,” segir Hal
Needham. ,,Og hann verður líka að
vera dálítið hégómagjarn. Þegar
maður er búinn með áhættuatriði er
ekkert lakara að fá dálítið lófaklapp.
Ég meina, skrattakornið, ef ég væri
ekki áhættuleikari þá hefði ég orðið
loftfimleikamaður eða eitthvað
svoleiðis. Ég vissi ekki hvað ég ætlaði
að verða. Ég vissi bara að mig langaði
að gera eitthvað sem sameinaði
áhættu og gott kaup. ’ ’
MEÐAN NEEDHAM HEFUR
orðið gerir Gary Davis sig kláran.
Hann verður með stærsta sýningar-
atriðið í dag. Hann lætur fallast niður
í rykið aftan við fleka sem liggur upp
á tveggja hæða bílaflutningavagn
aftanverðan. Eftir nokkrar mínútur
ætlar Davis að aka bíl sínum upp
flekann og renna honum yfír vagninn
og bílhúsið. Þetta er 50 metra stökk
og hann á að fá 4500 dollara fyrir
það. Hann stendur upp og dustar
rykið af höndunum. Varir hans em
þurrar og hann vætir þær með
tungunni.
Allir em sammála um að þetta
atriði sé „dúndrið” meðal þessara 17
áhættuatriða í Smokey and the
Bandit II. Davis og starfsfólkið, sem
sér um sérstök brögð í myndinni,
hefur eytt þrem dögum í að útbúa
flekann sem stökkið byggist á. „Það
sem gildir er hraðinn,” segir Davis.