Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Qupperneq 7
FÉLAGSTÍÐINDI
n
Sam|Dykktir fyrir Stéttarsamband bænda
1. gr.
Stéttarsamband bænda er stofnað sem
sjálfstæð deild innan Bf. ísl., en starfar
að ákveðnum verkefnum eftir því sem
fyrir er mælt í samþykktum þessum.
2. gr.
Verkefni Stéttarsambands bænda er að
að vera baráttuaðili fyrir hönd bænda-
stéttarinnar um þau mál, sem varða bein
hagsmunamál stéttarinnar og þó einkum
um eftirtalin atriði:
a) Að vera fulltrúi og framkvæmdaraðili
bændastéttarinnar um verðlag og verð-
skráningu landbúnaðarvara, gagnvart Al-
þingi og ríkisstjórn og öðrum aðilum, sem
um þau mál kunna að fjalla.
b) koma fram fyrir hönd bænda við
samninga um kaup og kjör verkafólks til
landbúnaðarstarfa, s. s. Ráðningarskrif-
stofu landbúnaðarins og annars staðar,
eftir því sem þörf krefur.
c) Vera málssvari og samningsaðili
bænda gagnvart öðrum stéttarfélögum og
stofnunum og gæta í hvívetna hagsmuna
þeirra.
ur eru litlar eða engar horfur á að bændur
fái einu sinni þetta verð fyrir kjötið.
Kjötverðið til bænda hefur verið ákveðið
tvö undanfarin verðtímabil kr. 6.82. Sam-
kvæmt útreikningi Hagstofunnar þurf'a
bændur að fá nú kr. 8,62 fyrir kjöt kg.,
til þess að bera úr býtum fyrir vinnu sína
svipað og aðrar vinnandi stéttir þjóðfé-
lagsins.
Þegar þetta er borið saman við það verð
sem verðlagsnefnd gerir ráð fyrir að bænd-
ur fái á yfirstandandi sölutímabili, eða kr.
5.98, er augljóst, að hér er um stórfellt fjár-
hagslegt áfall að ræða fyrir bændur.
í tilefni af þessu samþykkir stjórn Stétt-
arsambands bænda svofellda ályktun:
„Þar sem augljóst er, að bændur verða
fyrir tilfinnanlegu tjóni af óheppilegum
verðlagsráðstöfunum og fleiru, og bersýni-
legt er, að tekjur þeirra stór rírna frá
því er verið hefir, þrátt fyrir sívaxandi til-
kostnað, þá skorar Stéttarsambanda bænda
á Alþingi og ríkisstjórn að leita nú þegar
úrræða til að bæta bændum þetta með
útflutningsuppbótum, eða á annan hátt.“
3. Verkefni, sem fyrir liggja eru mörg og
mikilsverð. Ef svo ólíklega færi, að fátt eitt
af því, sem við óskum eftir, komist fram á
Alþingi því, er nú situr, verða bændur að
þjappa sér enn fastar saman til sóknar og
varnar málum sínum.
Stjórn Stéttarsambandsins hefur ákveð-
ið að ganga hið fyrsta frá frumvarpi til
samþykktar um sölustöðvun á framleiðslu-
vörum bænda, ef til þyrfti að taka, og ýms
önnur ákvæði í sambandi við það. Frum-
varp þetta mun verða sent stjórnum allra
búnaðarsambandanna til umsagnar.
Þá mun stjórnin leitast við að fá hæfa
menn til að skrifa um félagssamtök bænda
á Norðurlöndum. Enn fremur að birtar
verði opinberar skýrslur um verðlag á
innlendum framleiðsluvörum og kaupgj aldi,
svo og tilsvarandi opinbert verðlag og
kaupgjald í nágrannalöndum okkar strax
og til þess næst.
Með fullu trausti á samheldni og áhuga
bænda fyrir málefnum þeirra..
Sverrir Gíslason Jón Sigurðsson
Helgi Jónsson Sigurjón Sigurðsson
Einar Ólafsson.