Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Page 8

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Page 8
8 FÉLAGSTÍÐINDI d) Hafa forustu um, að bændur beiti samtakamætti sínum, til að fá framgengt sameiginlegum kröfum þeii’ra í verðlags- og viðskiptamálum eftir því sem ástæður eru til á hverjum tíma. 3. gr. Hvert hreppabúnaðarfélag kýs tvo kjör- menn á sameiginlegan fulltrúafund í hverju búnaðarsambandi. Þar sem fleiri sýslufélög eru í sama búnaðarsambandi er stjórn sambandsins þó heimilt að láta hvert sýslufélag fyrir sig halda fulltrúa- fund. 4. gr. Stjórnir búnaðarsambandanna boða til þessara funda samkvæmt 3. gr. Á fundum þessum skulu kosnir 2 fulltrúar fyrir hvert sýslufélag til þess að mæta á aðalfundi Stéttarsambands* bænda. Kosningin gildir til tveggja ára. Skulu fara fram hlutfalls- kosningar sé þess óskað. Búnaðarfélög kaupstaða hafa rétt til þess að senda full- trúa á fund í aðliggjandi sýslu. Þó skal Búnaðarfélagi Vestmannaeyja heimilt að kjósa einn fulltrúa beint á aðalfund Stétt- arsambandsins. Búnaðarsamböndin bera kostnað af fulltrúafundum hvert á sínu sambandssvæði. 5. gr. Á fuhtrúafundum búnaðarsambandanna skal, auk kosninga fulltrúa á aðalfund Stéttarsambandsins, ræða verðlagsmál landbúnaðarvara og önnur hagsmunamál bændastéttarinnar og gera ályktun úm þau mál eftir því sem efni standa til. 6. gr. Stéttarsamband bænda skal halda aðal- fund í sept. til nóv. ár hvert, og aukafundi þegar framkvæmdastjórn telur þurfa eða % hlutar Stéttarsambands-fulltrúa óska þess. 7. gr. Um kosningarétt og kjörgengi innan Stéttarsambands bænda gilda sömu ákvæði og um kosningu fulltrúa til Búnaðarþings. 8. gr. Aðalfundur Stéttarsambands bænda kýs 5 menn í framkvæmdastjórn til tveggja ára. Kjörgengir í framkvæmdastjórn eru aðeins þeir menn, sem stunda landbúnað eða gegna mikilvægum trúnaðarstörfum í þágu bændastéttarinnar að dómi aðal- fundar Stéttarsambandsins. Framkvæmda- stjcrnin kýs sér sjálf formann. Aðalfundur er lögmætur ef % hlutar kjörinna fulltrúa mæta á fundinum. 9. gr. Framkvæmdarstjórnin fer með mál Stéttarsambandsins milli aðalfunda. Eru ákvarðanir þess bindandi fyrir bænda- stétt landsins í þeim málum, er um getur í 2. gr. Framkvæmdastjórnin getur ráðið framkvæmdastjóra. Um einstök atriði framkvæmda skal semja reglugerðir, er stjórn Búnaðarfélags íslands staðfestir til bráðabirgða, en hljóta fullnaðarafgreiðslu á aðalfundi. 10. gr. Framkvæmdastjórnin semur árlega skýrslu um störf sín, og skal hún lögð fyrir aðalfund Stéttarsambandsins. Þá skal og lagt fram yfirlit um kostnað við störf Stéttarsambandsins. 11. gr. Á aðalfundi Stéttarsambandsins skal samþykkt fjárhagsáætlun fyrir næstu tvö ár. Áætlun þessi leggist síðan fyrir næsta Búnaðarþing.Kostnaður við aðalfundStétt- arsambandsins, svo og vegna starfa fram- kvæmdastjórnar greiðist úr Búnaðarmála-

x

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagstíðindi Stéttarsambands bænda
https://timarit.is/publication/1916

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.