Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 32
bndurnyjun flugbrauta a
KeflaviKurflugvelli
Höskuldur Tryggvason, verkefnastjórihjá ÍAV
Jón Örn Jakobsson, verkefstjórihjá ÍAV
inngangur 22. mars 2016 voru opnuð tilboð í verkið „Keflavíkurflugvöllur
Endurnýjun flugbrauta 2016-2017“ verkkaupi ISAVIA, íslenskir
aðalverktakar hf (ÍAV) áttu lægsta tilboð í verkið kr 5.679.578.913,-
og var samið við félagið um framkvæmdina á grundvelli tilboðsins.
Verkið fólst í að lagfæra þversnið og endurnýja malbiksyfirlög á
brautum 01-19 og 10-28 með fræsingu og malbikun, endurnýja allar
ídráttarröralagnir og setja niður undirstöður hliðar- og brautarljósa.
Einnig skildu gerðar tvær nýjar akstursleiðir fyrir flugvélar, svokölluð
RET (rapid exit taxiways) og þar undir átti að jarðvegsskipta. Helstu
magntölur útboðsins voru gröftur jarðvegs 65.000 m3, malar-
fyllingar 65.000 m3, ídráttarröraskurðir 19.000 m, ídráttarrör
155.000 m, fræsun eldra malbiks 420.000 m2, malbik 105.000
tonn og malbiksútlögn 700.000 m2. Um var að ræða stærsta útboð
á malbiksframleiðslu og útlögn malbiks til þessa á Islandi og til að
átta sig á þessari stærðargráðu þá er hefðbundinn tveggja akreina
vegur 7 metra breiður og samsvara þetta magn því til malbikunar á
100 km löngum vegi. Skildi verkið unnið frájúní 2016 til september
2017 og skipt í 9 áfanga. Framkvæmdin átti að hafa lítil sem engin
áhrif á flugsamgöngur til og frá landinu. En hvernig er hægt að
endurnýja flugbrautir, bæði malbik og rafmagn án þess að loka
flugvellinum, með flugumferð meiri en áður hefur þekkst og skila
verkinu á réttum tíma. Það þurfti öfluga verkefnisstjórnun og góða
samstarfsaðila, sem allir ynnu að sama marki og síðast en ekki síst
þurfti að fá veðurguðina í lið með sér, en ekki er hægt að malbika
yfirlög nema á þurrt yfirborð. Samstarfsaðili ÍAV í þessu verki var
Malbikunarstöðin Hlaðbær — Colas og var þeirra verkefnisstjóri
Auðunn Pálsson, einnig unnu ýmsir smærri undirverktakar gott
starf í verkinu. Fyrir hönd ISAVIA var Atli Björn Levy verkefnisstjóri. í
þessari grein verður því lýst hvernig verkefnið gekk fyrir sig og reynt
að gefa innsýn í hvernig svona verk vinnast.
Hönnun og Verkið fór hratt af stað eftir að tilboði var tekið og bar þess merki að
íeikningar því leiti að nokkuð var um breytingar á verktfma. Var breytt t.d.
malbiksblöndu, aðferðum við malbiksútlögn og aðferðum við
rafvæðingu á brautum. í byrjun voru fræstar rásir í undirlög malbiks
...upp 'vindinn
32