Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 35
bar okkur að skila öllum innri úttektum
okkar til verkkaupa. Til að bregðast við
þessu var keyptur aðgangur að verkefna-
stjórnunarkerfinu Ajour og verkstjórum var
úthlutað spjaldtölvum til að nýta það og
fylgjast með nýjustu teikningum í kerfinu.
Kerfið var innleitt í ársbyrjun 2017 og nýttist
við þá 7 áfanga verksins sem unnir voru það
ár. Hefur það reynst mjög vel. Verkkaupa og
eftirliti var veittur aðgangur að þessu kerfi
svo þeir gætu fylgst með öllum okkar
úttektum. Gerðar voru um 3.800 útektir
Mynd3 Unniðvíömaibikunágóðumdegi sem kerfið heldur utan um. Kerfið hélt utan um verkúttektir,
öryggisúttektir, úttektir við móttöku á efni og úttektir í aukaverkum.
Teknar voru myndir af hverju einasta Ijósi í brautunum til staðfestinar
á réttri stefnu og hæð eins og okkur bar að gera. Þá voru einnig
teknar myndir af brunnum og öðru sem talið var nauðsynlegt.
Útbúnir voru tékklistar upp úr gæðahandbók ÍAV og þeir aðlagaðir
verkefninu og kom í Ijós að verkstjórar voru að nýta þessa lista við
framkvæmd á verkinu svo þeir virkuðu vel. Er Ijóst að við teljum
þetta orðið nauðsynlegt tæki í framkvæmdum, hvort sem haldið
verður áfram með Ajour eða annað sambærilegt kerfi. Kostnaður
við svona kerfi sparast fljótt t.d. í tímasparnaði verkstjóra við
gæðaeftirlit (öllum skráningum er lokið strax), tíma við að elta
teikningar og miðlun upplýsinga, við móttöku efnis, gámaleigu og
aukaverkum, en smærri aukaverk geta gleymst nema þau séu strax
skráð, eins og gerðist í þessu verkefni í einu tilfelli. Frábrigði í gæðum
verkþátta framkvæmdum af ÍAV voru fá og flest leyst með úrbótum
og ekkert sem stendur útaf nú við verklok. Hlaðbær Colas sá um
þann hluta gæðamála sem snéri að framleiðslu og útlögn malbiks,
unnið var eftir þeirra gæðakerfi sem einnig er vottað samkvæmt
ISO 9001 2015 gæðastaðlinum. Gerðar voru háar kröfur gagnvart
gæðum í verkinu, meðal annars var gerð krafa um að endanleg
yfirborðshæð viki ekki meira en 5 mm frá hönnunarhæð. Gæða-
eftirlit þeirra sá um að safna öllum sýnum og gera mælingar til að sjá
fyrir því að gæðakröfur séu uppfylltar. Yfir 900 hrýfismælingar og
3.600 sléttleikamælingar voru teknar. Skekkjan á sléttleikanum
mátti ekki fara yfir 3 mm mælt frá 3 metra réttskeið, erfitt að ná því
án þess að nota 3D tækni (alstöðvar). 3D tæknin var bæði notuð
fyrir malbikunar hlutann og fræsunina en með þessari aðferð var
náð að hámarka útlagnarhraða með tilliti til gæðakrafna.
35
Endurnyjun flugbrauta a Keflavi1<.urflugvelli