Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 41
okkur í gamla bæinn í Katmandú þar sem má finna fjöldann allan af
musterum. Þar mátti sjá greinileg áhrif jarðskjálftans á þær fornu
byggingar sem þar voru, en einnig þá uppbyggingu sem á sér nú
stað við að endurreisa það sem skemmdist.
Veísla að nepölskum Um kvöldin var svo haldið heim til Ijölskyldu Rajesh, en þar var svo
sið sannarlega tekið vel á móti okkur. Þar var okkur þoðið uppá fjöldann
allan af nepölskum réttum ásamt því að fá að taka þátt í
eldamennskunni. Síðan var dansaður nepalskur dans fram eftir
nóttu líkt og Nepalir gera þegar þeir koma saman og skemmta sér.
Það var gaman að sjá hvað börnin fengu að njóta sín í veislunni,
öðruvísi en heima á íslandi, þar sem tvær litlar stelpur fengu að vera
miðpunktur athyglinnar allt kvöldið og fullorðna fólkið tók þátt í
uppátækjum með þeim og skemmtu sér vel.
i-erðast um Nepal
Eftir ógleymanlega veislu var haldið af stað á vit fleiri ævintýra
næsta morgun. Ferðuðumst við um í lítilli hópbifreið þar sem að allur
farangurinn okkar var bundinn á þakið á bílnum. Rajesh var að
sjálfsögðu með í för, en einnig leiðsögumaðurinn okkar Kumar og
bílstjóri. Fyrsta stopp ferðarinnar var Chitwan þjóðgarðurinn, en þar
var áætlað að gista í tvær nætur. Á leið okkar þangað, þar sem við
keyrðum (hossuðumst) um sveitir landsins á holóttum vegum í allt
of miklum hita, var stoppað í river rafting sem var hin mesta
skemmtun. Þegar loks var komið í þjóðgarðinn tók við heljarinnar
dagskrá, en þar sigldum við um á kanó, sáum apa, krókódíla og
nashyrninga, löþbuðum um ífrumskóginum, heimsóttum ræktunar-
miðstöð fyrir fíla og enduðum á safarí ferð í leit að tígrisdýri. Eftir
frábær ævintýri í þjóðgarðinum var haldið
af stað til Pokhara. Á leið okkar þangað
heimsóttum við vatnsaflsvirkjun og
skoðuðum við bæði stífluna sjálfa og
stöðvarhúsið. í Nepal er mikið um stórar
og kraftmiklar ár sem koma neðan úr
Himalaja íjöllunum og eru því góður
virkjanakostur. Um kvöldið þegar til
Þokhara var komið slökuðum við svo á
þar sem að markmiðið var að vakna
eldsnemma morguninn eftir og horfa á
sólarupprásina við Himalajafjöllin. Þvílík
fegurð sem blasti við okkur þegar sólin
tók að rísa og var það algjörlega þess virði
að fara snemma á fætur. Restina af
deginum eyddum við í skoðunarferð um
!_!_/!
I I
Útskriftarferð vor 2017