Upp í vindinn - 01.05.2018, Side 47
og vegna lítilla loftskipti þá hækkar hlutfallsrakinn. Til þess að taka
samtímis tillit til áhrifa rakagjafar og loftskipta á inniloftraka þá er
rakagjöfin iðulega gefin upp sem rakamagn á hvern rúmmetra í
loftskiptum, Dw í g/(m3). Rakamagn innilofts fæst þá sem loftraki
útilofts að viðbættri þessari rakagjöf.
Mynd 2 Lofthiti og loftraki í Reykjavík árið 2011
Mynd 3 Reiknisleg rakabæting í inniloft; (0-8 g/m3 á rúmmetra
iioftskiptum) (Heimild: ÍSTENISO 13788:2012)
Algeng rakagjöf er t.d. vegna þvotta, hreingerninga og
vökvunar blóma svo dæmi séu nefnd, auk rakagjafar frá
íbúum. Auk þessara almennu orsaka fyrir rakagjöf geta
komið óheppilegir eða mjög tímabundnir orsakavaldar s.s.
útþornun byggingaraka, lekar vegna úrkomu eða frá
lögnum og hárpípuflutningur vatns frá grunnvatni.
20
10 -------------------—------------------------------
0
Jan Feb Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept Okt
Mánuður
Mynd 4 Hlutfallsraki innilofts í Reykjavík
fyrir mismunandi rakabætingu (0-8 g/m3)
oginnihita20°C.
í Svíþjóð er iðulega miðað við að slík rakagjöf í íþúðarhúsi
sé 2-4g/m3, tölur frá Bandaríkjunum gefa svipaða
niðurstöðu ef miðað er við ein loftskipti á klukkustund en
hliðstæðar tölur frá Danmörku gefa um 2 g/m3 fyrir 300m3
íbúð. Rakagjöf til innilofts, reiknað á loftskiptamagn, er
sennilega lægri á Reykjavíkursvæðinu vegna ódýrrar hitunarorku
og því hugsanlega mikillar loftræstingar. í staðlinum ÍST EN ISO
13788:2012 er sett fram tillaga að reiknislegri rakabætingu í húsum,
reiknað á hvern rúmmetra í loftskiptum og háð útihita, sjá mynd 3.
Útfrá upplýsingum um lofthita og raka í útilofti, gefinn innihita og
rakagjöf þá má reikna hvernig loftraki innilofts breytist eftir
árstíðum, mynd 4. í íbúðarhúsnæði er rakagjöf mismunandi eftir
herbergjum og loftræsting getur einnig verið mismunandi. Þannig
má t.d. búast við að tímabundið geti loftraki orðið mjög hár í
baðherbergjum og loftraki í svefnherbergjum getur einnig orðið
allhár að næturlagi ef lítið er loftræst.
47
Rakaalag a byggingarhluta og afleiðingar þess