Mímir - 01.05.1964, Side 3

Mímir - 01.05.1964, Side 3
B L A Ð MÍMIR FÉLAGS STÉDENTA 1 ÍSLENZKUM FRÆÐUM Ritnefnd: Böðvar Guðniundsson, Guðrún Kvaran, Vésteinn Ólason ( ábm.). UM BLAÐIÐ Ritnefnd MÍMIS hefur nú tekizt að koma út öðru tölublaði þessa árgangs og þykist því liafa efnt þau Ioforð, er hún gaf í upphafi starfstíma síns um efnis- magn. Öðrum skal látið eftir að dæma um gæðin. Vafalaust má margt að ritinu finna, en það getur þá verið næstu ritnefndum livatning til að gera betur. Þeg- ar útgáfa MÍMIS var hafin fyrir tveim árum, töldu svartsýnismenn, að erfitt mundi reynast að fá nægilegt efni í eitt blað á ári, en það hefur nú verið af- sannað rækilega. Helzta vandamálið, sem við er að glíma, er bið fjárhagslega. En dugnaður nokk- urra deildarmanna og velvilji ýmissa fyrirtækja, sem annars staðar er getið, bef- ur gert okkur kleift að koma blaðinu út. Þá liafa Háskólinn og Félag íslenzkra fræða veitt styrk til útgáfunnar. Við þökkum aðstoðina. Sú nýbrevtni hefur verið tekin upp að fá erlenda stúdenta, sem bér dveljast, til að skrifa í blaðið, og teljum við það liafa gefið mjög góða raun. Það eykur fjöl- brevtnina og kynnir okkur merkar, erlendar bókmenntir, en auk þess er fróðlegt fyrir okkur að sjá, hvernig stúdentar við aðra háskóla taka á verkefnum svipuð- um þeim, sem við glímum við bér. Þessum ágætu höfundum þökkum við. MÍMI liefði vissulega verið Ijúft að minnast með einhverju móti þjóðskáldsins Davíðs Stefánssonar, en stúdentar bafa nú þegar minnzt hans með ágætri bók- menntakynningu og einnig nijög glæsilega í nýútkomnu Stúdentablaði. Auk þess bafa margir lielztu andans menn þjóðarinnar minnzt bans í dagblöðunum. Þótt- umst við því ekki menn til að bæta liér um, en vafalaust verður einbvern tíma síðar fjallað um skáldskap lians í MÍML 3

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.