Mímir - 01.05.1964, Síða 36

Mímir - 01.05.1964, Síða 36
maður stefnunnar er Sterne í Tristram Shandy. Alger andstæða þessarar aðferðar er hin hlutlæga eða dramatíska aðferð, aðferð Is- lendingasagnanna, sem á seinni öldum var aft- ur tekin upp af Flaubert o. fl. Við verðum að líta svo á að hin hlutlæga aðferð takmarki sig við samtöl og frásögn atferlis. Grundvallarein- kenni hennar er sjálfviljug fjarvera hins al- vísa höfundar úr sögunni, en í staðinn er beitt ákveðnu sjónarmiði eða viðliorfi („point of view“). Skáldsagan sýnir okkur til skiptis mynd og drama, þ. e. a. s. mynd af meðvitund einhverrar sögupersónu um það sem er að ger- ast (í henni og utan), gagnstætt ,,senum“, sem eru að nokkru leyti samtöl og sýna allnákvæm- lega þýðingarmikinn atburð eða mót. Myndin er eins hlutlæg og dramað. Hún er aðeins hlut- læg frásögn sérstakrar huglægni einnar af söguhetjunum, en dramað er hlutlæg frásögn tals og hegðunar. Aðferðin viðurkennir að heimilt sé að skipta um viðhorf, ef sú skipting fer eftir föstum reglum. Hún heimilar einnig að höfundur noti ákveðna persónu inni í sög- unni, ekki ólíka lionum sjálfum, sem annað livort segir einliverjum vinum söguna eða þeirri meðvitund, sem allt er séð í gegnum. Ef höfundur vill vera nærstaddur, verður hann að hafa sömu stærð og stöðu og hinar persónurn- ar. Einn þáttur liinnar hlutlægu aðferðar cr að atburðirnir eru kynntir í tímaröð, lesand- inn lifir það sem gerist með persónunum. Einkennandi fyrir stíl hinnar hllitlægu skáldsögu er það tæknibragð sem Þjóðverjar kalla „erlebte rede“ og Frakkar m. a. „le mo- nologue intérieur“. Það hefur verið skýrgreint sem „bein tilvísun lesandans inn í innra líf persónunnar án nokkurrar truflunar með lit- skýringum eða viðbótum af höfundarins hálfu . . .“ og sem „tjáning hinna dýpstu hugs- ana, þeirra sem liggja næst hinu ómeðvitaða“. Aðferðir hinnar ldutlægu skáldsögu hafa hvergi nærri verið kannaðar til fulls enn þá. Bókmenntategundir (Literary genres). Við skiptingu í bókmenntategundir flokka menn hókmenntir og bókmenntasögu ekki eftir tíma eða stað, heldur eftir bókmenntalegri gerð og byggingu. Aristóteles og Hóraz eru hin klassíska heim- ild um þessi efni. Frá þeim er komin til okkar hugmyndin um tragedíu og epos sem hinar merkustu bókmenntateg. En a.m.k. Aristóteles gerir sér einnig grein fyrir annarri greiningu sem ristir dýpra — greiningunni í drama, epos og lýrík. Flestir nútíma fræðimenn munu fúsir að láta niður falla skilin milli lauss og bundins máls í þessu sambandi og skipta síðan skáld- bókmenntum (imaginative literature, Diclit- ung) í frásagnarlist (fiction) þ. e. skáldsög- ur, smásögur eða sögidjóð, leikbókmenntir (drama), hvort sem þær eru í lausu eða hundnu máli og ljóðlist (einkum það sem 1 iI forna nefndist lýrískur kveðskapur). Menn telja þó almennt réttara nii að nefna þessa æðri flokka ekki bókmenntategundir (genres), heldur geyma það nafn smærri flokkum, sem eiga sér sögulegar rætur. Réttast er að h'ta á skiptingu eftir bók- menntategundum sem flokkun bókmennta- verka, sem fræðilega er hyggð hæði á ytra formi (t. d. sérstökum bragarliætti) og einnig á innra formi (afstöðu til efnis, hugblæ, til- gangi o. s. frv.). Allt fram á átjándu öld voru skilin allskýr milli bókmenntategunda, einkum vegna klass- ískra áhrifa, og það var talið heyra til góðs skáldskapar að halda sér stranglega við bók- menntategundina, einkenni hennar og stíl. Með nítjándu öldinni breyttist þetta. Hinar gömlu bókmenntategundir leystust upp, blönduðust eða liurfu. Síðan liafa mörkin aldrei verið eins skýr milli einstakra bók- menntategunda, og þær hafa að jafnaði orðið skammlífari. Samt sem áður er hugtakið í fullu gildi og nauðsynlegt að nota það við bók- menntakönnun, þótt oft geti revnzt nokkrum erfiðleikum bundið að ákveða hvað er bók- menntategund og livað ekki. Yfirleitt ættum við að binda okkur meira við hina formlegu hlið við ákvörðun bók- menntategunda. Miða fremur við hluti eins 36

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.