Mímir - 01.05.1964, Side 14

Mímir - 01.05.1964, Side 14
ast talizt stórbrotið kvæði, enda stutt og ekki sérlega viðamikið. Það er einkum eftirtektar- vert vegna léttleika síns og gamansemi, og á sínum tíma hefur yrkisefnið sjálfsagt vakið at- livgli. Þetta virðist Hjálmar liafa fundið, er hann liefur lesið kvæðið eða heyrt á yngri ár- um sínum, og þá jafnframt fundið hjá sér löngun og mátt til að gera betur. Arangurinn af því mun þá vera kvæðið Hjálmars lýsing. Þar þræðir Iiann eldra kvæðið þó ekki sérlega nákvæmlega, lieldur leggur talsvert af efninrx til frá eigin brjósti og er ófeiminn við að láta sjálfur gamminn geisa. Árangurinn verður þokkalegt kvæði, sem aö skáldskapargildi stendur Sjálfslýsingu Jóns Þorlákssonar naumast að baki, en geldur þó æsku höíundar síns svo, að því stendur það nokkuð fyrir þrif- um. Síðan líður og bíður, Hjálmar glatar þessu kvæði og það er einungis fyrir hreina tilviljun, að það hefur varðveitzt þar til nú. Á efri ár- um sínum tekur hann til við að safna kvæðum sínum saman, og þá man hann eftir þessu kvæði, yrkir það upp aftur og Lýsing á stroku- manni verður til. Það er tvímælalaust lang- bezta kvæðið af þessurn þremur, þaulhugsað og hnitmiðað, Hjálmar þræðir þar kvæði Jóns Þorlákssonar öllu nákvæmar en fyrr, og beitir auk þess sinni eigin skáldgáfu, sem orðin er langþjálfuð eftir áratuga viðureign við rímur og kvæði af flestum tegundum. Ur þessu verð- ur því þungt og viðamikið kvæði, mótað af lífsreynslu höfundarins og næmleika skáldsins á viðbrögð mannlegs sálarlífs. Það skiptir ekki máli, þótt Hjálmar sé hér berlega að lýsa sjálf- um sér, því að í kvæðinu sprettur upp hin ágætasta persónulýsing, sem felld er fagurlega inn í alþýðlegt form gömlu íslenzku fer- skeytlunnar. Ivvæðið Grafskrift er varðveitt á lausu blaði með liendi Hjálmars, sem liann hefur skrifað á Eyjafjarðarárum sínum. Á sama blaði stend- ur eftirbreytni Hjálmars eftir hinum alþekkta Aldarhætti Hallgríms Péturssonar, og er brag- arliátturinn, sem Grafskrift er ort undir, hinn sami og á Aldarhætti, svo að augljóst má telja, hvaðan hann sé fenginn. Um efnislega fyrirmynd Hjálmars að þessu kvæði er erfitt að fullyrða. Erfiljóð og rímað- ar grafskriftir voru þá mjög í tízkn og sú kveð- skapargrein útbreidd. Ymsir höfðu og ort yfir sig sjálfir, svo sem Sigurður Pétursson, sem kvað: Hér liggur Péturs Sigurður son, hans sál á himni (er flestra von!), til vfirvalds þegar að öðlingur sló hann, hann át, og hann drakk, og hann svaf, og svo dó hann.1 Það má minna á, að Jón Þorláksson á Bæg- isá var einn fyrsti stórframleiðandi erfiljóða hérlendis, og átti Hjálmar einmitt síðar eftir að feta mjög í fótspor hans á því sviði. Mörg af erfiljóðum beggja þessara skálda bera þess greinileg merki, að þau eru ort annað livort í hreinu atvinnuskyni eða þá af einberri greiða- semi við eftirlifandi ættingja, og geldur and- ríkið þess þá vitaskuld á stundum. Jón Þorláksson hefur ort nokkur kvæði, þar sem gætir leiða hans á erfiljóðagerð sinni, en hann fleytir sér yfir það með meðfæddu glað- lyndi sínu og léttlyndi. Eru þetta kvæðin Um dauSa mús í kirkju, Eftir spánskan hrút og Tittlings minning, og eru þau alþekkt. Ekki má þó gera ráð fyrir, að þessi kvæði séu bein- ar fyrirmvndir að Grafskrift Hjálmars, því að til þess eru þau of ólík. Hins vegar má benda á annað kvæði Jóns Þorlákssonar í þessu sam- bandi, en það er kvæðið Grafskriftsem hann orti yfir sjálfan sig síðustu nótt sína í Galtar- dal, áður en liann fluttist norður til Bægisár. Þetta kvæði er þó ort í mun alvarlegri tón en Grafskrift Hjálmars, og í því gætir ekki sarna gáskans og þar. Virðist mér ekki ósennilegt, að Hjáhnar kunni að hafa ort þetta kvæði sitt 1 Siguröur Pétursson: Ljóðmæli (Rvk. 1844) 261. - Jón Þorlálcsson: íslenzk ljóðabók (Kh. 1842—43 II, 536—37. 14

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.