Mímir - 01.05.1964, Síða 42

Mímir - 01.05.1964, Síða 42
Kvæði þetta er í 113 köflum og lýsir í ósam- stæSum skopmyndum siglingu fjölmargra manngerða til lands þess, sem nefnt er Narra- gonia. Hver manngerð á sér sinn fulltrúa, per- sónugerving eða afkáralegt fífl, sem lætur stjórnast af blindum hvötum sínum, svo sem ágirnd, lygi, öfund, ótta, grimmd, lastmælgi, undirferli, falsi, ótryggð og ofstopa, en rang- læti, sjálfselska og tízkutildur eiga einnig sína fulltrúa. Kvæði þetta er hvöss ádeila á aldar- far og háttu samtíðarinnar, sett fram sem af- káralegt skop. En höfundi er mikið niðri fvrir, og liann varar lesandann af alvöruþunga við að slást í liópinn — gerast samferðarmaður fíflanna. 'Das NARRENSCHIFF’ vakti strax mikla athygli og var þegar þýtt á latínu, frönsku, ensku og hollenzku, og á 16du öld var það gefið út um eitt hundrað sinnum í Þýzkalandi. Kvæðið var nefnt ‘divina satira’, og samtíma- menn BRANTS efuðust um, að skrifað liefði verið hnyttilegra gamanverk. Einn taldi BRANT ekki einungis mesta skáld samtíðar- innar, heldur fremsta skáld, sem skrifað liefði á þýzka tungu. Fjölfræðingurinn Johan Geiler von Kayserberg flutti fyrirlestra um einn kafla kvæðisins í hálft annað ár í Strassburg, en þá dó hann og gat ekki meira. En aðrir tóku við og lögðu út af kvæðinu. Sumir endurgerðu kvæðið eða rituðu ný verk: ‘Das neue Narren- schiff’, ‘Das kleine Narrenschiff’, ‘Der Narren- spiegel’, og svo mætti lengi telja. Langt er um liðið, síðan von Kayserberg flutti fyrirlestra sína, og bókmenntafræðingar telja nú, að kvæðið sé hvorki nýstárlegt að formi né stíl. Hugmyndin um siglingu fíflanna cr ekki frá BRANT runnin, og persónugerv- ingar mannlegra eiginleika eru að sögn mun eldri í bókmenntum álfunnar. Hins vegar rek- ur BRANT spillingu samfélagsins ekki til syndsamlegs lífernis borgaranna, eins og höf- undar endurreisnarinnar höfðu gert og notið drengilegs stuðnings kaþólsku kirkjunnar í því, heldur telur hann orsökina vera heimsku og skilningsleysi. Þar slær BRANT nýjan streng, sem víða átti eftir að hljóma, og vegna þessa viðhorfs urðu álirif ‘des NARREN- SCHIFFES’ mikil og greinileg, og margir heittu þessum sömu brögðum gegn keisurum, jörlum og greifum og sjálfum páfa. IV Ungur hafði Sebastian BRANT ekki verið and- vígur endurbótum á því, sem aflaga fór að lians dómi, livorki stjórnarliáttum hins verald- lega valds né kirkjuskipun kaþólsku kirkjunn- ar. Alla tíð taldi hann sig formælanda forn- menntastefnunnar, og í anda þeirrar stefnu barðist hann, þegar ‘das NARRENSCHIFF’ kom út, því að kvæðið átti að vísa veginn til hetra lífs í ljósi mannúðar og skilnings þeirr- ar stefnu. En með árunum gerðist BRANT íhaldssamari. Hann sá hugsjón sína fölna í skugga kenninga siðbótarmanna, og hann gerð- ist andvígur þeim — en fékk ekki aftur snúið. Gagnrýni lians á valdhöfunum hafði skotið frjóöngum, og kvæðið hefur átt sinn þátt í því að brjóta viðjarnar af brautryðjendum siðbót- arinnar, er þeir fundu, að skopstælingum ‘des NARRENSCHIFFES’ mátti beita gegn spill- ingu kirkjunnar, enda telja bókmenntafræð- ingar, að áhrifa frá kvæði BRANTS gæti í verkum siðhótarmanna, jafnvel í sálmum Martins Luthers. Áhrif ‘des NARRENSCHIFFES, hárust fljótt til Frakklands, og þegar Frangois Ra- belais tók að skopast að hinum lærða stíl ka- þólsku skólaspekinganna, beitti liann hinum afkáralega stíl BRANTS. Aðrir komu síðan á eftir, og í leikritum Jean Moliéres kveður við sama streng. Heimskan er talin undirrót spill- ingarinnar, og tákn hennar er fíflið, sem hald- ið er lærdómshroka, ágirnd eða sjúklegri ímyndun eða metnaði. Nízka, tildur og trú- girni íklæðast holdi heimsks yfirstéttarmanns, og illgirnin á sinn fulltrúa. Síðar fetar Ludvig Holberg í fótspor Moliéres, og frá honum ber- ast þessi áhrif norður til Islands. Gætir þeirra í leikritum Snorra Björnssonar og Sigurðar 42

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.