Mímir - 01.05.1964, Síða 46

Mímir - 01.05.1964, Síða 46
sem sízt skyldi. Heimskan var í hávegum iiöfð, enda munu hátíðir þessar hafa orðið fyr- ír álirifum frá margnefndu kvæði BRANTS. Nefndust þær ‘festum stultorum’, hátíð heimskingjanna, og munu hafa verið fyrir- mynd herranætur Skálholtssveina, en eins og kunnugt er, má rekja uppliaf leikritunar á Is- landi til hennar.11 Ef til vill koma ýmis nöfn okkur kunnuglegar fyrir sjónir, þegar ‘das NARRENSCHIFF’ er haft í huga. Sperðill, Narfi eður sá narraktugi biðill og Hrólfur, hinn grohhni gleiðgosi og hraðlygni svika- hrappur, eiga án efa ætt sína að rekja til ‘des NARRENSCHIFFES’, þótt margt liafi skolazt til á langri leið. Eins og áður er á minnzt, var það oft lofað við ‘hátíðir heimskingjanna’, er sízt skyldi, og ósiðum og löstum sungið lof. Erasmus frá Rotterdammi ritaði til dæmis Morias Enco- mion eða Stultitiae Laus, eins og það var einn- ig nefnt, en í riti þessu gætir mjög áhrifa frá ‘dem NARRENSCHIFFE’. Snemma á 18du öld ritaði svo lærdómsmaðurinn Þorleifur Halldórsson Mendacii Encomium á latínu, en þýddi síðar á íslenzku og nefndi Lof lyginn- ar.12 Er þetta bein stæling á riti Erasmusar. Áhrif frá Lofi lyginnar munu ekki liafa orðið mikil á íslenzkar bókmenntir, en ritið sýnir, livert straumurinn rann og hvar upptakanna er að leita. Þessum sundurleitu brotum hefur verið rað- að hér saman til að sýna örlítið horn gamallar, suður-þýzkrar myndar, sem virðist bregða all- víða fyrir í íslenzkum bókmenntum, þegar nið- urlæging þjóðarinnar var mest og erlendir förumenn voru höfðingjar á Islandi. 1. apríl 1964 11 StgrJÞorst Upphaf 10—17, 22—25. 12 Gefið út í Islandica VIII. Ithaca 1915. Eysteinn SigurSsson: Lítið andsvar I seinasta Mímishefti birtist grein eftir Þor- leif Hauksson, þar sem hann gerir að umtals- efni lauslega hugmynd, sem ég setti fram í næsta hefti sama blaðs á undan. Þessi hug- mynd eða hugdetta mín var í stuttu máli í því fólgin, hvort verið gæti, að samfelldan þró- unarferil mætti rekja innan íslenzkrar bók- menntasögu, og ef svo væri, hvort hann lyti þá nokkrum lögmálum, sem liugsanlega mætti festa hendur á. Þorleifur er mér mikið reiður í grein sinni og telur áminnztri ritsmíð minni flest til for- áttu. Við því get ég í rauninni ekki gert, enda þykist ég hafa tekið það nógsamlega fram, að þar var aðeins um lauslega hugmynd að ræða, og hún sett fram sem slík, en það eru nokkur atriði í grein hans, sem ég treysti mér samt ekki til að taka þegjandi og hljóðalaust. Hann deilir mikið á mig fyrir froðukennda framsetningu og of mikla mælgi, en um slíka hluti deili ég ekki, það er smekksatriði. En hins vegar fer hann mörgum og illum orðuin um vinnubrögð mín, rekur það, að ég beiti ekki vísindalegum vinnubrögðum til þess að leiða fram niðurstöðu, ég gleypi jafnharð- an ofan í mig aftur allt það, sem ég leggi til málanna, og loks fórnar hann liöndum í ör- væntingu og spyr, liver væri þróun hinna ís- lenzku fræða, ef allir færu eins að og ég, „fjöll- uðu eins óvísindalega um efni sitt, væru jafn ragir við að ganga í berhögg við fyrirrennara sína og eins skelfdir við að setja fram og renna stoðum undir niðurstöður sínar . .. . “ og svo framvegis. Eg ætla ekki að eyða löngu máli til að svara 46

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.